• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Eina sem vantar í þetta viðtal við Gylfa Magnússon er að hann haldi því fram að við verðum Kúba norðursins''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. apríl 2019
in Viðskipti
A A
0

,,Það liggur einnig fyrir sérfræðiálit um að 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán séu baneitraður kokteill sem verði að banna“

Vilhjálmur Birgisson, formaður VFA

,,Hvað er eiginlega að hjá þessu ágæta fólki en Gylfi Magnússon, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands segir að það sé misskilningur að lækkun vaxta komi heimilunum til góða og galið að takmarka lánstíma verðtryggðra lána.
Telur Gylfi misskilning fólginn í því að telja að vaxtalækkun færi heimilunum mikinn ávinning þar sem heimilin eru einnig eigendur vaxtaberandi eigna?“
Segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness um mjög umdeilda grein við Gylfa Magnússonar, dósents við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og formann bankaráðs Seðlabanka Íslands.
Gylfi sagði ,,það mis­skiln­ing­ að lækk­un vaxta komi heim­il­un­um til góða og galið að tak­marka láns­tíma verðtryggðra lána,“ en Gylfi Magnús­son er dós­ent við viðskipta­fræðideild Há­skóla Íslands og formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Þetta sagði hann í þætt­in­um Þing­völl­um á K100 í morg­un sem að birtist jafnframt á mbl.is. ,,Flest lán til heim­il­anna eru lán frá öðrum heim­il­um og þar fyr­ir utan eru heim­il­in að lána fyr­ir­tækj­um og hinu op­in­bera. Þannig að það er stórfurðulegt að horfa á vaxta­lækk­un sem tekju­bót fyr­ir heim­il­in,“ sagði hann m.a. í viðtalinu.

Vilhjálmi Birgissyni blöskraði málflutningurinn enda harður andstæðingur verðtryggingarinnar

,,Að hugsa sér að Gylfi Magnússon formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands og umsækjandi um að verða Seðlabankastjóri skuli halda því fram að okurvextir sem heimilin þurfa að þola séu byggðir á misskilningi og að vaxtalækkun komi heimilunum ekki til góða því heimilin séu „eigendur“ vaxtaberandi eigna! Hvað er maðurinn að eiginlega að tala um að það sé bara eðlilegt að íslensk heimili séu að greiða 3 til 3,5% hærri raunvexti en neytendur á Norðurlöndunum.

Það liggur einnig fyrir sérfræðiálit um að 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán séu baneitraður kokteill sem verði að banna, enda gera þessi lán ekkert annað en að hækka fyrstu 25 árin af samningstímanum! Nei það vill Gylfi Magnússon alls ekki því nauðsynlegt er að halda áfram að bjóða uppá baneitraða kokteilla sem byggjast uppá að sjúga allt fé frá varnarlausu lágtekjufólki.
Allt byggt á misskilningi því heimilin eigi svo mikið að „vaxtaberandi eignum“, er hann kannski tala um að blóðmjólka þurfi húsnæðiskaupendur í hverjum mánuði til að verja lífeyriskerfið?
Gerir þessi ágæti umsækjandi um að verða Seðlabankastjóri sér ekki grein fyrir því að af 30 milljóna húsnæðisláni þarf íslenskur almenningur að greiða allt að 100 þúsundum meira í vaxtakostnað miðað við neytendur á Norðurlöndunum í hverjum mánuði!
Eina sem vantar í þetta viðtal við Gylfa Magnússon er hann haldi því fram að við verðum Kúba norðursins ef tekið verður á okurvöxtum fjármálakerfisins og hagsmunir alþýðunnar og heimilanna verði teknir framyfir hagsmuni fjármálaelítunnar!
Ég tel að hérna blasi við hvernig hluti af fræðasamfélaginu og embættismannakerfinu er tilbúið að berjast af alefli gegn kerfisbreytingum þar sem hagsmunir heimilanna verði teknir framyfir hagsmuni fjármálakerfisins.
Mikilvægt að þetta ágæta fólk átti sig á því að tími kerfisbreytinga þar sem hagsmunir almennings verða hafðir að leiðarljósi er runninn upp, enda byggist lífskjarasamningurinn að stórum hluta á þeirri staðreynd!“
https://www.fti.is/2019/04/07/26-663-385-kr-verdtryggt-lan-verdur-ad-465-213-364-kr/
https://www.fti.is/2019/04/05/vidurkenning-a-skadsemi-verdtryggingarinnar/
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?