Klukkan 19:10 barst Neyðarlínu tilkynning um að snjóflóð hefði fallið í Svarfaðardal fyrir ofan bæinn Skeið. Fram kom að þrír aðilar hefðu orðið fyrir flóðinu og var tilkynnandi einn þeirra. Þegar var kallað út mikið lið viðbragðsaðila og aðgerðarstjórn virkjuð á Akureyri. Virkjuð var hópslysaáætlun almannavarna og óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar á vettvang.
Þegar fyrstu viðbragðsaðilar komu á vettvang kl. 19:55 fundu þeir strax tvo menn og var annar þeirra slasaður. Stuttu sienna fannst sá þriðji í jaðri flóðsins og var hann einnig slasaður. Þegar þetta er skráð kl. 20:50 er verið að hefja flutning á þeim slösuðu á sjúkrahús.Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo komnu en settar verða uppfærðar upplýsingar hér inn kl. 21:45.
Uppfærðar upplýsingar vegna snjóflóðs í Svarfaðardal:
Þyrla Landhelgisgæslunnar, m.a. með tvo lækna innanborðs, lenti skammt frá vettvangi um kl. 21:10 og mun flytja einn slasaðan einstakling af vettvangi á sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. Hinir tveir aðilarnir sem urðu fyrir flóðinu og slösuðust einnig verða fluttir af vettvangi með sjúkrabifreiðum á sjúkrahúsið á Akureyri. Allir þrír aðilarnir sem urðu fyrir flóðinu eru af erlendu bergi brotnu.
Áætlað er að um 130 viðbragðsaðilar hafi komið að aðgerðunum í Svarfaðardal. Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið eða líðan hinna slösuðu að svo stöddu.
Umræða