• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 12. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hverjir eiga Ísland?

Ísland

Fá 725 milljónir í skaðabætur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. apríl 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að tillögu Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra að verja allt að 725 milljónum króna  til stuðnings við bændur sem urðu fyrir tjóni vegna óvanalegs og erfiðs tíðarfars á landinu sumarið 2024. Sumarið var óvenju kalt samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands eða það kaldasta á landsvísu síðan árið 1998.

 Stuðningur verður tvíþættur, annars vegar vegna afurða- og gripatjóns sem atvinnuvegaráðuneytið annast og hins vegar vegna tjóns á hey og uppskeru sem fellur undir hlutverk Bjargráðasjóðs. Gert er ráð fyrir að stuðningur verði greiddur til ríflega 300 búa.

Áætlað er að tæp 60% af heildarstuðningi fari til framleiðenda á Norður- og Austurlandi en þau landssvæði urðu verst úti í kuldakastinu í júní 2024. Þá er áætlað að um 35% stuðningsins fari til framleiðenda á Suðurlandi þar sem rigning og kuldi ollu miklu tjóni á uppskeru.

„Fæðuöryggi er stórt öryggismál fyrir okkur á óvissutímum”  segir atvinnuvegaráðherra. „Innlend matvælaframleiðsla spilar þar lykilhlutverk, því koma stjórnvöld til móts við bændur til að minnka þau áföll sem varð á búum í kjölfar kuldakastsins.“

Utan kuldakastsins á Norður- og Austurlandi í júní 2024 var tíðarfar erfitt víðar á landinu um sumarið, einkum vegna mikilla rigninga og hvassviðris. Í júní snjóaði óvenju mikið á Norðurlandi miðað við árstíma, sumarið einkenndist af lægðagangi, mikilli vætutíð og var óvenjulega úrkomusamt um land allt. Hýsa þurfti búfé sem var komið á beit, sem ekki tókst í öllum tilvikum og fórst umtalsverður fjöldi gripa. Einkum var um að ræða sauðfé, en nokkur dæmi voru einnig um nautgripi og hross. Þá hafði veðurfarið einnig neikvæð áhrif á uppskeru og afurðir ársins. Samkvæmt Hagstofu Íslands var kartöfluuppskera ársins 2024 sú minnsta síðan 1993, gulrótauppskera ársins sú minnsta í 11 ár og kornuppskera sú minnsta frá árinu 2018.

Til að gera viðbrögð skilvirkari og markvissari er gert ráð fyrir að  framtíðarfyrirkomulag sjóða sem bæta  náttúruvá verði endurskoðað, þ.m.t. samlegðar og hagræðingartækifæri. Að auki verður áfram unnið að stefnumótun um náttúruvá, sbr. skýrslu umhverfis- og auðlindaráðuneytis frá apríl 2023.

Umræða
Share7Tweet4
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • 30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

    30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    60 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • LEB telur gliðnun á milli launa og grunnlífeyris vera með öllu óþolandi

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst lítur brotin alvarlegum augum

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Handtekinn fyrir ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni í Kópavogi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?