• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Credit info skráir fólk á vanskilaskrá vegna ólöglegra lána

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. maí 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

,,Credit info segir að ekki sé hægt að taka fólk af vanskilaskrá fyrr en það hafi greitt kröfurnar og þar með viðurkennt þessi ólöglegu lán“

Formaður Neytendasamtakanna, Breki Karlsson

Formaður Neytendasamtakanna, Breki Karlsson, segir það ótækt að Credit Info kanni ekki lögmæti krafna áður en það setur fólk á vanskilaskrá. Dæmi eru um að fólk lendi á vanskilaskrá eingöngu vegna smálána. Fólk losni ekki af vanskilaskránni nema það greiði smálánaskuldina og viðurkenni þar með ólögleg lán. Þetta kemur fram í viðtali við Breka á Rúv.
Þá segir enn fremu að fram hafi komið í fréttaskýringaþættinum Kveik í síðustu viku að hátt í þriðjungur þeirra sem leita til umboðsmanns skuldara er með skuldir vegna smálána og að efnalítið ungt fólk sem ekki nái endum saman taki oft smálán til að brúa bilið og sé þannig fast í vítahring.
Smálánafyrirtækin skipta við Sparisjóð strandamanna til að fá aðgang að greiðslumiðlunarkerfi bankanna. Sparisjóðsstjórinnn sagði í samtali við fréttastofu í gær að til skoðunar væri að loka á viðskiptin við smálánafyrirtækin.
Hákon Stefánsson,  hjá Credit Info, sagði í Morgunútvarpi Rásar 2 í gær að auðveldasta leiðin til að stöðva smálánafyrirtækin væri fyrir lántaka að neita að greiða, þannig að málið endi fyrir dómstólum. Fjölmargir sem tekið hafa smálán hafa leitað til Neytendasamtakanna.

En á sama tíma er Credit info að skrá þessi vanskil á fólk vegna lána sem að standast ekki íslensk lög

„Okkur hjá samtökunum hafa borist nokkrar ábendingar um það að fólk sem hefur lent í vandræðum hjá smálánafyrirtækjunum fyrir að greiða ekki þessi ólöglegu lán, hefur lent á vanskilaskrá hjá CreditInfo,“ segir Breki Karlsson er formaður Neytendasamtakanna í viðtalinu.
Aðspurður um hvort að það sé bara vegna smálánaskulda? Svarar hann. „Já, samkvæmt okkar upplýsingum er það bara vegna smálánaskulda, engra annarra skulda,“
Þá segir Breki í viðtalinu að svör Credit info hafi verið á þá leið að ekki sé hægt að taka fólk af vanskilaskrá fyrr en það hafi greitt kröfurnar og þar með viðurkennt þessi ólöglegu lán. Breki furðar sig á því að fyrirtæki geti beðið Credit Info um að setja fólk á vanskilaskrá og Credit Info kanni ekki réttmæti þeirra krafna. Þó svo að fólk fái nokkurra daga andmælarétt nýtist það oft ekki þar sem þeir sem taki smálán séu oft ekki stakk búnir til að taka til varna.
„Við höfum krafist þess að Credit Info breyti verklagi sínu og leggi niður þessa öfugu sönnunarbyrði. Það er að segja að fyrirtæki verði þá að sanna það að kröfur þeirra séu réttmætar en ekki að einstaklingar verði að afsanna það að þær séu réttmætar,“ segir Breki.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?