Hugleiðingar veðurfræðings
Lægð djúpt suðvestur af landinu beinir til okkar mildu og röku lofti. Það verður því austan- og suðaustanátt í dag, gola, kaldi eða strekkingur og súld eða rigning með köflum, en norðaustanlands verður líklega þurrt að mestu. Hiti víða 8 til 14 stig, en heldur svalara í þokulofti við ströndina. Á morgun er útlit fyrir svipað veður og í dag, en seinnipartinn má þó búast við dálítilli vætu norðaustantil á landinu. Spá gerð: 07.05.2023 06:44. Gildir til: 08.05.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Austlæg átt 5-13 m/s og súld eða rigning með köflum, en yfirleitt þurrt norðaustanlands. Hiti víða á bilinu 7 til 14 stig. Svipað veður á morgun, en dálítil væta norðaustantil seinnipartinn. Spá gerð: 07.05.2023 04:33. Gildir til: 08.05.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Austan og suðaustan 5-13 m/s og súld eða rigning með köflum. Þurrt að kalla á norðanverðu landinu, en dálítil væta norðaustanlands undir kvöld. Hiti 6 til 15 stig.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Fremur hæg breytileg átt og væta með köflum, einkum norðanlands. Hiti 5 til 13 stig, mildast á Suðurlandi.
Á fimmtudag:
Hægt vaxandi suðaustanátt og fer að rigna sunnan- og vestanlands seinnipartinn, en yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 8 til 15 stig.
Á föstudag og laugardag:
Suðvestlæg eða breytileg átt og skúrir. Kólnar smám saman.
Spá gerð: 06.05.2023 21:21. Gildir til: 13.05.2023 12:00.