• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 4. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Mikið af dauðum sjóbirtingum í Grenilæk

Grenilækur

Mikið af dauðum sjóbirtingum í Grenilæk

Vatnsþurrð er nú í Grenlæk í Landbroti, einni af mestu sjóbirtingveiðiám landsins

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. maí 2024
in Fréttir, Innlent, Uncategorized
A A
0

Mikið sást af dauðum sjóbirtingum, flestir yfir 50 cm langir og að líkindum fiskar sem hrygndu á sl. hausti

Vatnsþurrð er nú í Grenlæk í Landbroti, einni af mestu sjóbirtingveiðiám landsins. Við vettvangsskoðun 2. maí sást að efstu 11 km Grenlækjar á svæðinu ofan við Stórafoss eru þurrir, en þar eru mikilvægar hrygningar- og uppeldisstöðvar fyrir sjóbirting. 

Þegar er ljóst að vatnalíf hefur orðið illa úti vegna vatnsþurrðarinnar, hafa þörungar, smádýr og fiskar drepist á öllu því svæði sem þornaði. Sérstaklega hefur sjóbirtingsstofninn orðið illa úti, þar sem nær öll seiði og hrogn sem nú eru í mölinni á svæðinu hafa drepist og þar með 2–3 seiðaárgangar. Farvegur lækjarins var að mestu skraufaþurr og sást lítið sem ekkert vatn utan einstaka þornandi smápolla. Engan lifandi fisk var að sjá á svæðinu. Fréttin birtist á vef Hafrannsóknarstofnunar, HafogVatn.is

https://frettatiminn.is/wp-content/uploads/2024/05/grenlaekur-vorid-2024-vatnsthurrdin.mp4

Endurtekin vatnsþurrð í Grenlæk

Grenlækur er frjósamur lindarlækur með ríkulegu lífríki. Þar er einn stærsti sjóbirtingsstofn landsins og þar eru mjög verðmæt veiðihlunnindi. Vatnsbúskapur Grenlækjar er háður því að nægilegt vatn flæði úr Skaftá og út á Eldhraunið en ef svo er ekki þá á rennsli Grenlækjar til með að þrjóta. Rennslinu út á Eldhraun er stýrt og er það takmarkað. Á því svæði sem nú er á þurru eru ein helstu hrygningar- og uppeldissvæði sjóbirtings í læknum. Vatnsþurrð hefur endurtekið orðið í Grenlæk síðast árin 2016 og 2021. Munur frá fyrri atburðum er að nú sást mun meira af dauðum fiski en áður. Svo virðist sem sjóbirtingurinn hafi ekki náð að ganga niður af svæðinu eftir hrygningu sl. haust líkt og áður. Hafrannsóknastofnun stundar vöktunarrannsóknir á fiski og öðru lífríki í Grenlæk og er þar m.a. fiskteljari. Fisktalning mun væntanlega svara þeirri spurningu hversu margir fiskar koma til með að skila sér úr hafi í sumar og haust og þar með hversu alvarlegt ástand stofnsins er.

Sá fiskidauði sem nú hefur orðið er í 4 skiptið sem slíkt gerist. Finna þarf leiðir til frambúðar til að tryggja háa grunnvatnsstöðu í hraunum á svæðinu svo vatnsrennsli til lindarvatna verði nægt til að viðhalda vatnsrennslinu og því ríkulega lífríki og fiskgengd sem þar er að finna.

Umræða
Share4Tweet3
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hval­fjarð­ar­göng lokuð vegna hjól­reiða­manns – Búið er að loka göngunum aftur

    Hvalfjarðargöng eru lokuð

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Sýklalyfjaónæmar bakteríur (MÓSA) greinast í fyrsta sinn á Íslandi  

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Salmonella staðfest

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Við vitum nákvæmlega hvað mun gerast hér á landi“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?