• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skúrir eða slydduél en snjóél á fjallvegum

Skúrir eða slydduél en snjóél á fjallvegum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. maí 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Lægð á Grænlandshafi beinir til okkar suðlægri átt, víða 5-13 m/s í dag og skúrir eða slydduél, en snjóél á fjallvegum. Á norðaustanverðu landinu verður þurrt og bjart framan af degi, en seinnipartinn má búast við stöku skúrum á þeim slóðum. Hiti 3 til 12 stig yfir daginn, hlýjast norðaustantil.

Í nótt og fyrramálið kemur hæð inn á Grænlandshaf og lægðin hörfar til norðausturs. Það verður því vestlæg átt á morgun, yfirleitt hægari vindur en í dag og léttir víða til, en þó eru líkur á stöku skúrum eða slydduéljum norðan- og vestantil á landinu. Hiti 3 til 11 stig að deginum, mildast á Suðausturlandi.
Spá gerð: 07.05.2024 06:29. Gildir til: 08.05.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu
Sunnan og suðvestan 5-13 m/s og skúrir eða slydduél. Bjart að mestu um landið norðaustanvert, en stöku skúrir þar seinnipartinn.

Heldur hægari vestlæg átt á morgun. Bjart með köflum og líkur á stöku skúrum eða slydduéljum, einkum fyrrpartinn, en léttskýjað á Suðausturlandi.

Hiti 3 til 11 stig yfir daginn.
Spá gerð: 07.05.2024 09:43. Gildir til: 09.05.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag (uppstigningardagur):
Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað með köflum vestantil, en lengst af bjartviðri annars staðar. Hiti víða 5 til 10 stig yfr daginn. Vaxandi austanátt við suðurströndina um kvöldið.

Á föstudag:
Austan og suðaustan 5-15, hvassast við suðurströndina. Rigning eða súld með köflum, en yfirleitt þurrt á norðanverðu landinu fram á kvöld. Hiti 5 til 12 stig.

Á laugardag og sunnudag:
Suðaustlæg eða breytileg átt og væta með köflum, en lengst af úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hlýnar heldur.

Á mánudag:
Norðlæg átt og rigning með köflum, einkum fyrir norðan. Kólnar í bili.
Spá gerð: 07.05.2024 08:38. Gildir til: 14.05.2024 12:00.

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    Nýtt flugfélag í Keflavík

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Eftirlýst kona handtekin

    97 deilingar
    Share 39 Tweet 24
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?