• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 5. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Starfsmenn fjármálafyrirtækja semja um stöðugleika

Starfsmenn fjármálafyrirtækja semja um stöðugleika

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. maí 2024
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Langtímasamningur hefur verið undirritaður milli Samtaka atvinnulífsins og Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Byggir samningurinn á Stöðugleikasamningnum sem undirritaður var í mars við meirihluta félaga á almennum vinnumarkaði. Samningurinn gildir frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028.

Stöðugleikasamningurinn styður markmið samningsaðila um minnkun verðbólgu og lækkun vaxta. Af því leiðir að kaupmáttur eykst, aukinn fyrirsjáanleiki verður í efnahagslífinu, dregið er úr verðbólguvæntingum og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs styrkist. Slíkur stöðugleiki er eitt stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja á óvissutímum.

Verkefnið er ekki búið

Stöðugleikasamningurinn markaði vatnaskil á vinnumarkaði þar sem hóflegum launahækkunum til fjögurra ára er ætlað að skapa skilyrði fyrir stöðugleika.

Stöðugleiki kemur hins vegar ekki af sjálfu sér þrátt fyrir góða niðurstöðu kjarasamninga. Horfa þarf fram á veginn og tryggja að kjarasamningar verði til þess að draga úr verðbólguþrýstingi, en ekki öfugt. Atvinnulíf og stjórnvöld þurfa að rísa undir sinni ábyrgð og vera samtaka. Þannig er hægt að ná tökum á verðbólgunni og eygja von um lækkun vaxta.

„Það er afar ánægjulegt að klára kjarasamninga við starfsmenn fjármálafyrirtækja og þá ekki síst að ná sameiginlegum skilningi á verkefninu framundan. Nú er tíminn til þess að tileinka okkur nýja nálgun til þess að verja lífskjör og skapa skilyrði fyrir fjárfestingu í frekari verðmætasköpun. Staðan í viðræðum við FFR og Sameyki þessa dagana er bæði erfið og alvarleg, hún sýnir hvar brugðið getur út af í þeim samningum sem eftir eru. Hversu miklar launahækkanir samræmast verðstöðugleika eru ekki endilega augljósar hagstærðir en eftir mikla vinnu í síðustu kjaralotu náðum við saman um það í tímamótasamningum. Okkur ber saman að standa vörð um þá niðurstöðu, öðruvísi náum við ekki langþráðum stöðugleika. “ – segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Hér má kynna sér efni samnings SA við fjármálastarfsfólk:

Samningur SA við SSF

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    88 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    114 deilingar
    Share 46 Tweet 29
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    51 deilingar
    Share 37 Tweet 6
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    50 deilingar
    Share 20 Tweet 13
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?