• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 15. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Grunur um listeríu í frosnum maísbaunum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. júlí 2018
in Óflokkað
A A
0

Grunur um listeríu í frosnum maísbaunum

NeytendaverndMatvælastofnun varar við neyslu á frosnum maísbaunum vegna gruns um listeríu. Upplýsingar komu um innköllunina í gegnum RASFF,evrópska viðvörunarkerfið um hættuleg matvæli á markaði. Fyrirtækið Samkaup mun í samráði við heilbrigðiseftirlit Suðurnesja, innkalla vöruna af markaði.  Verslanir munu fá upplýsingar og fjarlægja maísinn af markaði. Uppruni maísbaunanna er frá Ungverjalandi og ungverska fyrirtækið Greenward hefur sent út fréttatilkynningu varðandi innköllunina.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

  • Vöruheiti: COOP extra söde majs
  • Vörumerki: COOP
  • Framleiðandi: Greenyard frozen Hungary Kft.
  • Innflytjandi: Samkaup, Krossmóa 4, 260 Reykjanesbær
  • Strikamerki:7340011431084
  • Lýsing: 650 g plastpokar
  • Framleiðsla: í agúst 2016 til og með nóvember 2017
  • Geymsluskilyrði: frystivara
  • Dreifing: Verslanir Samkaupa; Samkaup Úrval, Samkaup Strax, Nettó, Sunnubúð, Krambúð og Kjörbúðin.

Listeria monocytogenes

Hvað er Listeria monocytogenes ?

Sex tegundir af Listeríu eru þekktar og er Listeria monocytogenes sú tegund sem er sýkjandi, hinar tegundirnar valda yfirleitt ekki matarsjúkdómum en þó eru til undantekningar á því. Ólíkt flestum öðrum matarsýkjandi bakteríum þá er Listería gram jákvæð.

Hvar finnst Listeria monocytogenes ?

Listería er mjög útbreidd í náttúrunni og finnst í jarðvegi, plöntum, skólpi og  þörmum bæði manna og dýra. Vegna gífurlegrar útbreiðslu bakteríunnar þá er erfitt að koma í veg fyrir mengun af hennar völdum í unnum matvörum. Dýr geta smitast af fóðri og frá dýrunum getur bakterían breiðst meira út í umhverfið. Dýr sem smituð eru af Listeríu eru oft á tíðum einkennalausir smitberar. L. monocytogenes finnst oft í hráum matvælum en hún getur einnig fundist í elduðum mat ef um krossmengun er að ræða eftir hitameðhöndlunina.  Þannig að bakterían getur fundist í ýmsum tegundum af matvælum eins og  til dæmis reyktum og gröfnum fiski, hrámjólk, kjúkling, kjöthakki, kjötáleggi og grænmeti.

Vaxtarskilyrði og umhverfi

Listería er mjög þolin baktería og getur fjölgað sér á mjög breiðu sýrustigsbili frá 4,1 upp í 9,6.  L. monocytogenes getur vaxið í loftfirrðu og loftríku umhverfi, þannig að lofttæmdar umbúðir geta ekki komið í veg fyrir fjölgun bakteríunnar og í sumum tilfellum getur hún fjölgað sér í loftskiptum umbúðum.  Kjörhitastig bakteríunnar er 30 – 37°C en hún getur fjölgað sér á hitastigsbilinu 1°C – 45°C. Einnig getur hún fjölgað sér við allt að 10% saltstyrk og lifað af allt að 30% saltstyrk.

Listeriosis og einkenni.

Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis, einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi. Áhættuhópar eru aldraðir,  barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum L.monocytogenes eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.

Almennar ráðleggingar

  • Sjóða/hita hráar fisk- og kjötvörur vel (kjarni >70°C)
  • Skola vel hrátt grænmeti fyrir neyslu.
  • Halda soðnum matvælum frá hráum matvælum til að hindra krossmengun. Þvoið alltaf skurðarbretti og önnur áhöld þegar skipt er úr einni gerð hráefnis yfir í aðra.
  • Forðast ógerilsneydda mjólk.
  • Einstaklingar úr áhættuhóp ættu að varast að borða, reyktan og grafin fisk,  hráan fisk, hrátt kjöt, ósoðin og/eða lítið hitaðan mat.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Grillmarkaðurinn er fyrsta flokks veitingastaður – Frábærar veitinga og þjónusta

    Alvarleg líkamsárás – tveir í gæsluvarðhaldi

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    59 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • ,,Það er eitthvað brotið í íslenska menntakerfinu“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Stórútgerðin greiðir himinhá veiðigjöld erlendis

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Samtök um karlaathvarf -„ekki réttu aðilarnir til að hljóta styrk“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?