• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 16. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Játaði bankarán í Kópavogi fyrir 50 árum

Játaði bankarán í Kópavogi fyrir 50 árum

Fyrsta bankaránið á Íslandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. ágúst 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Í ársbyrjun 1975 var stolið rúmlega 30 þúsund krónum (þávirði) úr Útvegsbankanum sáluga í Kópavogi.

Á þessum tíma stóðu yfir framkvæmdir við húsnæði bankans og af þeirri ástæðu áttu þjófarnir greiða leið inn í bankann í skjóli nætur. Innandyra var m.a. að finna allnokkrar fötur með smámynt í og þeim stálu þjófarnir. Á litlu var að byggja við rannsókn málsins, en einhverjir voru þó yfirheyrðir án þess þó að tækist að upplýsa þjófnaðinn.

Segja má að málið hafi fallið í gleymsku allt þar til í sumar að einn þjófanna gaf sig fram við lögregluna og greindi frá öllu saman. Hvað varð til þess að maðurinn játaði sök hálfri öld síðar skal ósagt látið, en sjálfsagt er alltaf gott að létta á samviskunni. Við heimsóknina á lögreglustöðina sagði maðurinn frá því að hann hefði verið að verki ásamt nokkrum vinum sínum, en þeir voru allir um  fermingaraldur á þessum tíma.

Peningana földu þeir síðan á góðum stað og gengu í þá eftir þörfum. Aðspurður nánar hvað varð um peningana sagði maðurinn að þeir vinirnir hefðu notað þá til að gera sér glaðan dag. Í því fólst helst að gera vel við sig í mat og drykk og einnig að borga fyrir þá dægrastyttingu sem var vinsæl hjá unglingum á áttunda áratugnum. Um hugsanlega refsingu fyrir brotið er það að segja að málið er fyrnt.

Við uppflettingu í dagblöðunum frá árinu 1975 er að finna umfjöllun um málið í Mánudagsblaðinu. Þar er talað um bankarán og ræningjarnir sagðir vera snareygðir misindismenn!

Mánudagsblaðið

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • 120 félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness sviptir góðum tekjumöguleikum

    Hvað kom fyrir Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga?

    75 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • Hvert fóru þessir 23 milljarðar?

    128 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    120 deilingar
    Share 48 Tweet 30
  • Sam­eign þjóðarinnar – eða stærsta til­færsla auð­linda í sögu Ís­lands?

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?