• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ráðherra stækkar friðlýst svæði fólkvangsins í Garðahrauni ​

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. september 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, skrifaði í dag undir stækkun friðlýsingar fólkvangsins  í Garðahrauni efra í Garðabæ. Garðahraun var friðlýst sem fólkvangur í apríl 2014. Það er hluti af Búrfellshrauni sem rann fyrir um 8100 árum og er talið sérstætt á heimsvísu.  Á svæðinu sem bætist við fólkvanginn nú, á jaðri hraunsins við Hraunhóla, er helluhraun, en innar á hrauninu tekur við klumpahraun.
Votlendi Vatnsmýrarinnar er gróskumikil flæðimýri neðan Vífilsstaða og er þar fjölskrúðugt fuglalíf. Innan fólkvangsins finnst plöntutegundin ferlaufungur sem er friðlýstur og er metin sem tegund í yfirvofandi hættu. Einnig vaxa þar blátoppa og munkahetta sem eru á válista Náttúrufræðistofnunar Íslands.Fólkvangurinn nær nú til Garðahrauns neðra, Garðahrauns efra, Vífilsstaðahrauns og Maríuhella og er markmið friðlýsingarinnar að stækka fólkvanginn sem svæði til útivistar og almenningsnota og að ná fram skipulegri heildarmynd hraunsins.

„Garðbæingar hafa verið til fyrirmyndar í því að taka frá svæði í þágu náttúruverndar og nú stækka friðlýst svæði innan marka Garðabæjar enn,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Við sáum það svo skýrt í heimsfaraldrinum hvað aðgengi að friðlýstum svæðum í nærumhverfinu skiptir fólk miklu máli til ýmiss konar útivistar og afþreyingar. Við vitum líka að aðgengi að grænum svæðum eykur lífsgæði og stuðlar og bættri lýðheilsu, svo þetta er heillaskref fyrir Garðbæinga og okkur öll sem getum nýtt svæðið.“

Viðstaddir undirskriftina voru auk ráðherra og bæjarstjóra, fulltrúar bæjarstjórnar, skipulagsnefndar og umhverfisnefndar Garðabæjar, ásamt starfsmönnum sveitarfélagsins og fulltrúum Oddfellow, Umhverfisstofnunar og ráðuneytisins, en stækkunin hefur verið unnin í góðu samráði fulltrúa þessara aðila.

Umræða
Share7Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun vegna veðurs

    Viðvörun vegna veðurs

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Lögreglan leitar manns

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?