Fluttar voru út vörur fyrir 55,9 milljarða króna fob í ágúst 2021 og inn fyrir 92,1 milljarð króna cif (90,7 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 36,2 milljarða króna.
Til samanburðar voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 17,5 milljarða króna í ágúst 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í ágúst 2021 var því 18,8 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 207 milljarða króna sem er 42,4 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings jókst um 17,5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í ágúst 2021 jókst um 11,8 milljarða króna, eða um 26,8%, frá ágúst 2020, úr 44,1 milljarði króna í 55,9 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 9,5 milljarða króna, eða 45% samanborið við ágúst 2020, og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls. Útflutningsverðmæti sjávarafurða minnkaði um einn milljarð, eða um 5%, og munar þar mestu um lækkun á verðmæti frystra flaka og fiskimjöls. Á móti kemur aukið verðmæti í ferskum fiski og frystum.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá september 2020 til ágúst 2021, var 702,7 milljarðar króna og hækkaði um 104,5 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 17,5% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 49% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 17,8% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 41% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 12,4% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 11 milljarða, eða 42,3%, á sama tímabili og var um 5% af heildarútflutningsverðmæti síðustu tólf mánaða.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 19,3% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 92,1 milljarði króna í ágúst 2021 samanborið við 61,5 milljarða í ágúst í fyrra. Verðmæti flutningstækja jókst um 7,2 milljarða króna (114,7%), verðmæti hrá- og rekstrarvara jókst um 10,1 milljarð (59,5%) og verðmæti eldsneytis jókst um 4,5 milljarða króna (89,7%).
Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 909,7 milljarðar króna og jókst um 146,9 milljarða króna miðað við tólf mánuði þar á undan eða 19,3% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili var mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og neysluvörum en á móti var samdráttur í eldsneyti.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánuði var 199,7 og var gengið 3,9% veikara en á fyrra tólf mánaða tímabili þegar meðaltal gengisvísitölu var 192,2. Gengið styrktist aftur á móti um 7% í ágúst (193,8) samanborið við ágúst 2020 (208,5). Í þessari frétt er um bráðabirgðatölur að ræða og niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.
Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili | |||
Milljarðar króna á gengi hvors árs | september 2019 – ágúst 2020 | september 2020 – ágúst 2021 | Breyting frá fyrra tímabili (%) |
Útflutningur alls fob | 598,2 | 702,7 | 17,5 |
Sjávarafurðir | 259,2 | 291,3 | 12,4 |
Landbúnaðarafurðir þ.m.t. eldisfisk | 32,0 | 45,6 | 42,6 |
Iðnaðarvörur | 290,9 | 342,8 | 17,8 |
Aðrar vörur | 16,1 | 23,0 | 42,6 |
Innflutningur alls cif | 762,8 | 909,7 | 19,3 |
Matvörur og drykkjarvörur | 80,5 | 87,6 | 8,8 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 225,6 | 270,4 | 19,9 |
Eldsneyti og smurolíur | 68,1 | 43,4 | -36,3 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 164,3 | 203,0 | 23,6 |
Flutningatæki | 103,9 | 141,0 | 35,8 |
Neysluvörur ót.a. | 119,7 | 150,8 | 26,0 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 0,6 | 0,3 | -60,1 |
Vöruskiptajöfnuður | -164,6 | -207,0 |