Er verðsamráð hjá risunum á matvörumarkaði? Athygliverð verðkönnun var birt á vef á Facebook hjá hópi sem nefnist Vertu á verði – eftirlit með verðlagi en þar kemur fram að Bónus og Krónan eru nánast alltaf með sama verð og munar oftast einni krónu á verði sem er í takt við gömul umæli stjórnenda Krónunannar að vera einni krónu neðar í verði.
Sama gamla saga og hefur átt sér stað varðandi bensíverð í áratugi en Costco býður alltaf besta verðið til neytenda og getur sá verðmunur numið vel á annað hundrað þúsund krónur á ári fyrir neytendur. Ef svo er að verðsamráð ríki, þá er spurning hvar Samkeppniseftirlitið stendur varðandi einokun og verðsamráð gagnvart neytendum?
Á meðfylgjandi mynd má sjá verðkönnun sem birt var á vefnum og dæmi hver fyrir sig.
,,Geggjað hjá Prís að vera lægstir samkvæmt nýjustu könnun í dag en ég er aðeins hugsi yfir Krónunni í þessum samanburði.
Ég veit að þetta er búið að vera svona lengi en ef maður skoðar verðtöfluna þá eru þeir í nánast öllum tilfellum einni krónu dýrari en Bónus og standa þannig vel undir nafni. Nú spyr ég mig, er þetta einhliða ákvörðun eða tvíhliða samráð? Eða eru þeir bara að spara sér bókhaldið við að reikna út álagningu og elta alltaf besta vin Bónus?
Ef þetta er einhliða þá hlýtur þetta að vera gríðarleg vinna að fylgjast stöðugt með öllum verðbreytingum í Bónus. Mér finnst þetta bara lýsa skort á sjálfstæðri markaðshugsun og metnaði en auðvitað er voðalega þægilegt að vera bara alltaf númer tvö, sætta sig við að vera bara besti vinur aðal, lifa í skugga hans og hafa aldrei neitt um málið að segja.
En áfram Prís og skammarstrik á Krónuna fyrir að skorta kjark og þor.“ Segir á síðunni.