68 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi í liðinni viku. Þá voru höfð afskipti af tveimur aðilum sem grunaðir eru um að hafa ekið bifreiðum sínum undir áhrifum fíkniefna. Í báðum tilfellum reyndust ökumenn hafa fíkniefni í vörslum sínum. Þrír ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um að aka bifreiðum sínum ölvaðir. Einn þeirra var þar með að landa sínum sjöunda ölvunarakstri en annar tekinn í 12 sinn. Báðir hafa ítrekað ekið sviptir ökurétti.
Átta ökumenn voru kærðir fyrir að nota farsíma sinn án handfrjáls búnaðar við akstur bifreiða sinna.
Fimm bókanir eru tengdar dýrum. Á Hellu var ekið á svartan og hvítan kött sem drapst við það. Reyndist ómerktur og líklega villiköttur. Á Þykkvabæjarvegi var ekið á hross. Mikið tjón á bílnum en ekki vitað um ástand hrossins þar sem það hljóp út í myrkrið eftir áreksturinn. Á Meðallandsvegi var ekið á lamb þann 5.10. Umtalsvert tjón var á ökutækinu og þarf ekki að fjölyrða um ástand lambsins. Laus hundur hljóp í veg fyrir bifreið á Suðurlandsvegi við Laugardæli þannig að ökumaður hennar þurfti að nauðhemla til að koma í veg fyrir að lenda á dýrinu. Hundurinn hljóp af vettvangi og eigandi var hvergi sjáanlegur. Í Vík tók laus Husky hundur sig til og át gæs sem varð á vegi hans. Málið er til meðferðar hjá lögreglu og sveitarfélagi en sami hundur er sagður hafa drepið kött sem hann náði í þegar hann sleit sig frá eiganda sínum fyrr á þessu ári.
Umferðareftirlitsmenn okkar gerðu víðreist. Fengu lögreglumenn á Suðurnesjum til liðs við sig og ræddu, ásamt skattayfirvöldum við fjölda atvinnubílstjóra við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þrjú atriði leiddu til kæru vegna brota á umferðarlögum.
Tveir brunar urðu í umdæminu. Í öðrum þeirra eyðilagðist sumarhús í Brekkuskógi þegar eldur varð laus þar. Vísbendingar eru um að eldur hafi kviknað út frá rafmagni en málið er í vinnslu tæknideildar LRH og Mannvirkjastofnunar. Þá kom upp eldur í rafmagnsverkstæði á Hellu í gærkvöldi. Unnið er að rannsókn þess máls og að venju er það sérfræðingar tæknideildar LRH sem munu sinna því. Ekki er vitað um eldsupptök þar.
Gerð var húsleit í húsi í Hveragerði og húsráðandi handtekinn grunaður um ræktun kannabis í því og í skúr þar við. Hald var lagt á nokkurn fjölda kannabisplantna og eins umtalsvert fjármagn í reiðufé í ýmsum gjaldmiðlum en rannsókn málsins hefur varkið grunsemdir um peningaþvætti tengt framleiðslu og sölu fíkniefna.
Hverfislögreglumaður í Ölfusi fundaði með forvarnarteymi sveitarfélagsins í liðinni viku um skipulag þeirra mála í vetur. Mikið og gott samastarf er við félagasmálayfirvöld allstaðar í umdæminu og mikill áhugi hjá þeim til að takast á við verkefni tengd forvörnum. Lögreglufulltrúi rannsóknardeildar hélt í vikunni 6 fyrirlestra í Vallaskóla á Selfossi um ýmis mál tengd börnum s.s. netglæpi, heimilisofbeldi, kynferðisbrot o.fl. Um árlegt verkefni er að ræða.