Bílaframleiðandinn Toyota mun hætta að styrkja hinsegin viðburði eftir mikla gagnrýni á að fyrirtækið sé orðið of „vók.“ Í stað þess að styrkja og taka þátt í HBTQ viðburðum mun bílaframleiðandinn einbeita sér að viðskiptamarkmiðum fyrirtækisins. Toyota hefur áður verið í fararbroddi sem styrktaraðili í HBTQ-málum.
Eftir mikla gagnrýni hefur bílaframleiðandinn Toyota ákveðið að hætta að styrkja hinsegin viðburði og aðrar hátíðir sem ekki tengjast tækni og vísindum. Samkvæmt Bloomberg er ákvörðunin rakin til þess að umræðan um HBTQ og „vók“ sé orðin allt of pólitísk. Fjallað var um málið á vefnum Þjóðólfur.is
Sá sem hefur gagnrýnt Toyota einna harðast er bandaríski aðgerðarsinninn Robby Starbuck (á mynd/skjáskot Youtube). Á myndbandi sem vakið hefur mikla athygli gagnrýnir Starbuck Toyota fyrir að hafa gleymt hlutverki og viðskiptavinum sínum með því að styrkja hinsegin atburði og búa til sérstaka starfsmannahópa fyrir frjálsgerva og svarta starfsmenn. Starbuck sagði:
„Vægast sagt, þá virðist Toyota hafa gleymt hverjir eru kjarnaviðskiptavinir þeirra.”
Toyota mun í framtíðinni einbeita sér að bílaviðskiptum og markmiðum fyrirtækisins. Toyota skrifaði í bréfi sem sent var út til rúmlega 50 þúsund starfsmanna fyrirtækisins í Bandaríkjunum, að fyrirtækið myndi framvegis aðeins styrkja hátíðir og skrúðgöngur sem tengjast „vísindum, tækni, verkfræði og stærðfræði.”
Slaufumenning slaufar viðskiptavinum
„Go woke – go broke” er enskt kjörorð um fyrirtæki eins og Anheuser-Buschs sem framleiðir Bud Light og Budweiser bjórinn. Þeir hófu samstarf við trans aðgerðasinnann Dylan Mulvaney, sem leiddi til þess að fyrirtækið tapaði milljörðum dollara vegna þess að kjarnaviðskiptavinir fyrirtækisins hættu að kaupa bjórinn. Sömu sögu er að segja um mörg önnur fyrirtæki sem hafa fallið fyrir slaufumenningunni að þau hafa með því bundið hnút á viðskiptin og tapað stórfé.