Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag verður vestan eða norðvestan 5-13 m/s og skúrir eða slydduél en að mestu úrkomulaust á Suðausturlandi og Austfjörðum. Er líður á daginn dregur úr vindi og úrkomu, fyrst vestanlands en í kvöld verður orðið bjartviðri á öllu landinu. Í nótt verður vaxandi sunnanátt og úrkomuskil koma að sunnan- og vestanverðu landinu með rigningu.
Hvassviðri eða stormur með nokkuð efnismiklum skúrum
Snemma í fyrramálið gengur síðan í vestan hvassviðri eða storm með nokkuð efnismiklum skúrum, en úrkomulítið fram eftir degi norðaustantil. Heldur dregur úr úrkomu eftir hádegi á morgun, en ekki dregur úr vindi að neinu viti fyrr en aðfaranótt fimmtudags. Hiti 1 til 10 stig að deginum, mildast syðst. Spá gerð: 07.10.2025 06:43. Gildir til: 08.10.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Vestlæg átt, 3-10 m/s og skúrir eða él, en yfirleitt bjartviðri suðaustantil. Styttir smám saman upp seinnipartinn, en suðlægari vindar í kvöld.
Sunnan og suðvestan 8-15 og rigning í fyrramálið, en snýst í vestan 13-23 m/s með skúrum undir hádegi á morgun, hvassast syðst. Lengst af þurrt á Norðausturlandi, en skúrir eða slydduél þar seinnipartinn.
Hiti 1 til 10 stig að deginum, hlýjast fyrir austan.
Spá gerð: 07.10.2025 10:10. Gildir til: 09.10.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Sunnan- og suðvestan 8-15 m/s og fer að rigna sunnan- og vestanlands, en heldur hægari og þurrt norðaustantil fram á kvöld. Hiti 4 til 10 stig.
Á föstudag:
Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, dálítil væta syðst á landinu, en norðlægari stöku skúrir norðanlands. Kólnar heldur í veðri.
Á laugardag:
Hæg breytileg átt, yfirleitt bjart og þurrt veður, en fremur svalt.
Á sunnudag og mánudag:
Hlý suðlæg átt og súld eða dálítil rigning, en þurrt að mestu á Norður- og Austurlandi.
Spá gerð: 07.10.2025 08:05. Gildir til: 14.10.2025 12:00.