• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Norðlæg átt í kvöld með snjókomu eða éljum og kólnandi veðri

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. janúar 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Hugleiðingar veðurfræðings
Suðvestan og vestan 10-18 m/s og rigning fyrri part dags, en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 1 til 6 stig. Það verður úrkomuminna eftir hádegi, en síðdegis og í kvöld snýst í vaxandi norðlæga átt með snjókomu eða éljum og ört kólnandi veðri. Það hvessir í nótt, og í fyrramálið er útlit fyrir norðvestan storm eða rok á austanverðu landinu, og auk þess verður hríðarveður á norðausturlandi. Í svona veðri skapast afar varasöm aktursskilyrði, og eru viðvaranir í gildi á þessum slóðum. Á vestanverðu landinu verður hins vegar talsvert hægari vindur og dálítill éljagangur. Frost 2 til 10 stig.

Eftir hádegi á morgun fer að draga úr vindinum, og það styttir upp um landið norðanvert. Annað kvöld verður víða hægviðri, en allhvöss eða hvöss norðvestanátt austast á landinu.

Veðurhorfur á landinu
Suðvestan 10-18 m/s og rigning eða slydda, en úrkomulítið A-lands. Hiti 1 til 6 stig. Dregur úr úrkomu eftir hádegi, en snýst í vaxandi norðlæga átt síðdegis og í kvöld með snjókomu eða éljum og ört kólnandi veðri.

Norðvestan 20-28 m/s í fyrramálið, en hægari vindur um landið V-vert. Snjókoma N- og A-lands, og dálítil él V-til, annars þurrt að kalla. Frost 2 til 10 stig. Dregur úr vindi eftir hádegi og styttir upp um landið N-vert. Víða hægviðri annað kvöld, en norðvestan 13-20 A-til.
Spá gerð: 08.01.2021 06:01. Gildir til: 09.01.2021 00:00.

Gul viðvörun 

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Norðlæg átt 5-13 m/s og léttskýjað um landið sunnan- og vestanvert, en norðvestan 13-20 og dálítil él norðaustantil. Frost 4 til 12 stig.

Á mánudag:
Austlæg átt 5-10 og víða bjart veður, en norðlægari og lítilsháttar él við austurströndina. Frost 1 til 10 stig, kaldast inn til landsins.

Á þriðjudag:
Suðaustan 8-15 og skýjað en úrkomulítið um landið sunnanvert, hiti kringum frostmark. Hægari vindur og léttskýjað norðanlands og frost 2 til 8 stig á þeim slóðum.

Á miðvikudag:
Suðaustan 8-15 og rigning eða slydda með köflum sunnan- og vestanlands. Hiti 1 til 5 stig. Hægari vindur og bjartviðri á Norður- og Austurlandi með vægu frosti.

Á fimmtudag:
Suðlæg átt, skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti kringum frostmark.
Spá gerð: 08.01.2021 08:43. Gildir til: 15.01.2021 12:00.

 

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    209 deilingar
    Share 84 Tweet 52
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?