• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

1500 milljónir til stríðsreksturs í Úkraínu

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Andrii Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu.

1500 milljónir til stríðsreksturs í Úkraínu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. janúar 2025
in Fréttir
A A
0

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er nú stödd í vinnuheimsókn í Úkraínu þar sem hún fundar með ráðamönnum, áréttar stuðning Íslands við varnarbaráttu Úkraínu og kynnir sér stöðu mála. Þorgerður Katrín hefur í dag meðal annars átt fundi með Andrii Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu og Denys Shmyhal forsætisráðherra.

„Það var óhugnanlegt að fræðast um og sjá með eigin augum þá eyðileggingu sem Rússar hafa valdið en þeir hafa kerfisbundið ráðist á borgaralega innviði á borð við skóla, sjúkrastofnanir og orkuinnviði, auk þess að ráðast á almenna borgara. Þá var mikilvægt að geta átt milliliðalaus samtöl við úkraínska ráðamenn og áréttað einarðan stuðning Íslands við íbúa Úkraínu gegn ólöglegri innrás Rússlands. Úkraínumenn hafa nú í nær þrjú ár barist hetjulega og af æðruleysi fyrir frelsi sínu og fullveldi.

Stuðningur við Úkraínu er stuðningur við virðingu fyrir alþjóðalögum, lýðræði og mannréttindum sem eru þau gildi sem frjáls lýðræðisríki byggjast á. Það er mikilvægt að bandalagsríki og vinaþjóðir Úkraínu séu áfram samstíga í stuðningi sínum og við munum standa með Úkraínu eins lengi og þörf krefur,“ segir Þorgerður Katrín.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Andrii Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu héldu blaðamannafund að fundi þeirra loknum.

Ráðherrarnir þökkuðu meðal annars fyrir aukinn varnartengdan stuðning Íslands við Úkraínu sem samþykktur var á Alþingi í lok síðasta árs í samræmi við stefnu Alþingis um stuðning við Úkraínu.

Þessi auknu framlög, sem nema einum og hálfum milljarði króna, eru jafnframt liður í því að standa við þær skuldbindingar sem Ísland tókst á hendur á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í júlí síðastliðnum. Framlagið skiptist niður á fjögur verkefni sem falla að forgangsröðun Úkraínu og helstu samstarfsríki Íslands taka einnig þátt í að styðja. Um er að ræða 600 milljóna framlag í sjóð um sprengjuleit og -eyðingu á vegum ríkjahóps sem Ísland leiðir ásamt Litáen, 400 milljónir í samstarfsverkefni að frumkvæmdi Danmerkur um stuðning við úkraínskan varnariðnað, 300 milljónir í sjóð Atlantshafsbandalagsins til stuðnings Úkraínu og 200 milljónir í alþjóðlegan stuðningssjóð fyrir Úkraínu og bresk stjórnvöld halda utan um.

Í heimsókn sinni heimsótti ráðherra orkuver sem orðið hefur fyrir miklum skemmdum í árásum Rússa og verksmiðju sem framleiðir varnarbúnað með stuðningi Norðurlandanna og annarra Evrópuríkja.

Þorgerður Katrín heldur næst til Ramstein í Þýskalandi þar sem varnarmálaráðherrar ríkjahóps til stuðnings varnarbaráttu Úkraínu (e. Ukraine Defence Contact Group) funda um stöðuna á vígvellinum og stuðning ríkjanna við baráttu íbúa Úkraínu.

Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Vélhjólaslys

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Sigurður Fannar Þórsson dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp á 10. ára dóttur sinni.

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Lýst var eftir Hlyni Gíslasyni

    66 deilingar
    Share 26 Tweet 17
  • Rannsókn á andláti

    359 deilingar
    Share 144 Tweet 90
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?