• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 7. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Allt að 54% hækkun á matvöruverði milli mánaða – Mikil hækkun frá undirritun kjarasamninga

Matvöruverslun

Ölgerðin og Kjörís leiða hækkanir í byrjun árs

Verðlagseftirlit ASÍ

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. janúar 2025
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Fyrstu verðhækkanir ársins birtast nú á verðmiðum landsins. Vörur frá Ölgerðinni og Kjörís hækka mest, Ölgerðin um rúmlega 4% og Kjörís um tæplega 3%. Af vörum Kjörís er það tveggja lítra vanillumjúkís í Prís sem hækkar mest. Þrátt fyrir hækkunina er hann enn ódýrastur í Prís, samkvæmt nýjustu tölum, en hann hafði verið þó nokkru ódýrari en í Bónus fyrir áramót.

Verð á appelsíni og malti frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar var mun lægra í Bónus og Krónunni í desember en mánuðina á undan. Nú hefur það hækkað í það verð sem var í boði í september-október. Appelsínið eitt skýrir um fimmtung hækkunar á meðalverði Ölgerðarinnar milli mánaða.

Þó ber ekki aðeins á verðhækkunum, heldur einnig lækkunum. Til dæmis veldur eftirjóla-útsalan á Lindu hátíðarbuffi því að meðalverð á Góu-Lindu-vörum lækkar lítillega milli desember og janúar.

Dagvöruvísitala verðlagseftirlitsins hækkar um 0,3% milli desember og janúar það sem af er mánuði en sú hækkun gefur vísbendingar um verðhækkun dagvöru í vísitölu neysluverðs. Þrátt fyrir þónokkuð umfang verðhækkana í byrjun árs er ekki að sjá merki um aukinn verðbólguþrýsting. Til samanburðar hækkaði matvöruverð á sama tímabili í fyrra um 0,5% samkvæmt Hagstofu Íslands, og  yfir allan janúar um 0,6% í mælingum verðlagseftirlitsins.

Verðhækkanir skýrast ekki af alþjóðlegri þróun

Verð á hrávöru hækkaði mikið í kjölfar heimsfaraldurs og innrásar Rússa í Úkraínu snemma árs 2022. Þessar hækkanir voru meðal þess sem ýtt hefur undir mikla verðbólgu hér á landi og víðar. Verulega hefur dró úr hækkunum á hrávöru á síðasta ári og eru dæmi um að miklar hækkanir árana 2022-2023 hafi gengið til baka. Þó enn séu einstakar hrávörur sem hafi hækkað í verði, hefur hrávöruverð matvöru að jafnaði lækkað milli ára, um 2% á síðasta ári. Ýmsar hrávörur sem notaðar eru til framleiðslu hér á landi, t.d. olía og áburður lækkuðu einnig á síðasta ári.

Þessar lækkanir endurspeglast að einhverju leyti í lækkun á vöruverði frá t.d. Gestus og Grön Balance. Verð á vörum Gestus hefur lækkað um 2,5% frá undirritun kjarasamninga í mars í fyrra. Verð á vörum Grön balance lækkaði milli mánaða um tæplega 2,5%.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    121 deilingar
    Share 48 Tweet 30
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    55 deilingar
    Share 38 Tweet 7
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?