Hættustigi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Ísafirði og á Patreksfirði og svæði verið rýmd. Á Ísafirði hefur svæði undir Steiniðjugili verið rýmt. Einnig hafa nokkrir sveitabæir verið rýmdir og einnig sorpvinnslusvæðið við Funa
Hættustig á Ísafirði og Patreksfirði
Óvissustig vegna snjóflóðahættu er í gildi fyrir Vestfirði. Snjóað hefur á svæðinu í norðlægum og austlægum áttum síðan um miðja síðustu viku og vitað er um veikleika í snjóþekjunni. Spár gera ráð fyrir áframhaldandi hvassri NA-átt með snjókomu og síðan éljagangi í dag og fram á morgundag að sögn Veðurstofu Íslands.
Hættustigi hefur verið lýst yfir á Ísafirði þar sem rýmingarreitur 9, undir Steiniðjugilinu, hefur verið rýmdur. Einnig hafa nokkrir sveitabæir verið rýmdir sem og sorpvinnslusvæðið við Funa. Allmörg snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum síðustu daga og þar af nokkur í Skutlusfirði. Síðast í gær féllu tvö snjóflóð utan við Kirkjubæ og þrjú flóð í Fossahlíð.
Hluti rýmingarreits 4 á Patreksfirði hefur verið rýmdur og hættustigi lýst yfir. Snjóflóð féllu aðfaranótt mánudags á varnargarða á Patreksfirði. Varnargarður ver hluta reitsins en framkvæmdir eru hafnar við garð sem á að verja þann hluta sem nú hefur verið rýmdur.