• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Auðlindirnar okkar – Opinn fundur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. febrúar 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fimmti og síðasti opni fundur verkefnisins Auðlindin okkar var haldinn í dag, 8. febrúar á Grand hótel í Reykjavík. Fundaröðin hófst í október sl. með fundi á Ísafirði sem var fylgt eftir með sambærilegum fundum á Eskifirði, í Vestmannaeyjum og á Akureyri.

Líkt og á fyrri fundum var fjölbreyttur hópur mættur í morgunsárið á fundarstað. Strandveiðisjómenn, fulltrúar útgerða, sveitarfélaga, stjórnsýslu og almennir borgarar með tengingu eða með áhuga á málefnum sjávarútvegs komu til að fylgjast með framgangi verkefnisins og leggja sitt af mörkum til umræðunnar.

Í upphafi fundar voru fluttar samantektir á þeim 60 bráðabirgðatillögum sem lagðar voru fram 17. janúar sl. Þau Hildur Ingvarsdóttir úr starfshópnum Tækifæri, Eggert Benedikt Guðmundsson, formaður starfshópsins Aðgengi, Gréta María Grétarsdóttir, formaður starfshópsins Umgengni og Gunnar Haraldsson formaður starfshópsins Samfélag fluttu samantektirnar. Þeim var fylgt eftir með umræðum, fyrirspurnum úr sal og frá þátttakendum af streymi fundarins.

Umræður voru hinar líflegustu og strandveiðisjómenn duglegir við að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Umhverfismál, eftirlit og fjármögnun þess, nýliðun í greininni, aðgengi að auðlindinni og kynjahlutföll voru fundarfólki einnig ofarlega í huga og var því tæpt á mörgum ólíkum þáttum sjávarútvegs á Íslandi.

Fundarstjóri var Brynja Þorgeirsdóttir og var fundinum streymt á helstu netmiðlum en á sjötta þúsund áhorfenda hafa nú fylgst með streymi frá fundaröðinni.

Bráðabirgðaniðurstöður starfshópanna eru nú til umsagna í Samráðsgátt stjórnvalda. Unnt er að koma á framfæri frekari athugasemdum og ábendingum til og með 28. febrúar n.k. Gert er ráð fyrir að lokaniðurstöður starfshópana liggi fyrir í maí 2023 og að endanlegar afurðir úr verkefninu Auðlindin okkar líti dagsins ljós sem frumvörp til Alþingis vorið 2024.

Vakin er athygli á því að unnt er að koma á framfæri frekari ábendingum og upplýsingum sem kunna að nýtast í verkefninu í gegnum netfangið audlindinokkar@mar.is.

Streymi og upptökur af fundunum má nálgast á audlindinokkar.is

  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 1
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 2
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 3
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 4
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 5
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 6
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 7
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 8
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 9
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 10
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 11
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 12
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 13
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 14
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 15
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 16
  • Fjörugur opinn fundur Auðlindarinnar okkar í Reykjavík - mynd úr myndasafni númer 17
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    81 deilingar
    Share 32 Tweet 20
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Brot 529 ökumanna mynduð

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?