• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Spurning um líf og dauða í illviðri fyrir vestan

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. febrúar 2023
in Afþreying, Fréttir, Innlent
A A
0

Spurning um líf og dauða á hverri stundu

Halaveðrið kallast illviðri, sem varð á Halamiðum 7. – 8. febrúar 1925 út af Vestfjörðum. Veðrið brast á mjög snögglega um hádegið og umhverfðist sjórinn í einu vetfangi og varð ekki við neitt ráðið. Tveir togarar fórust.

Það voru Leifur heppni og Fieldmarshal Robertson en þeir voru við veiðar skammt hvor frá öðrum og þau skip sem næst voru misstu fljótlega sjónar af þeim. Leifur heppni var með talsverðan afla en ekki er vitað um hitt skipið. Óveðrið stóð yfir í hálfan annan sólarhring. Á Leifi heppna voru 33 íslenskir menn. Á Fieldmarshal Robertson voru 29 Íslendingar en auk þess voru á skipinu sex Englendingar.

Veifaði bróður sínum í hinsta sinn

Fjallað var um Halaveðrið í þætti á rúv.is og þar segir m.a. ,,Þegar upp var staðið voru 74 sjómenn sem var saknað, 32 konur misstu menn sína og 91 barn varð föðurlaust. Þá var hafin landssöfnun til styrktar ekkjum og börnum þeirra sem létust sem Steinar segir að hafi gengið mjög vel. Í bókinni er ein saga fyrir hvern togara. „Það voru 500 menn á sextán skipum, og mikil fjölskyldu- og ættartengsl á milli, meðal annars veifaði einn bróður sínum á Leifi heppna í síðasta sinn.“

Gunnar Hanson og Guðrún Gunnarsdóttir ræddu við Steinar J. Lúðvíksson í Mannlega þættinum á Rás 1 25. nóvember.

Spurning um líf og dauða á hverri stundu – 500 menn á sextán skipum, og mikil fjölskyldu- og ættartengsl á milli

Með Leifi heppna fórust þessir 33 menn:

Gísli M. Oddsson, skipstjóri, Skólavörðustíg 3 B.
Ingólfur Helgason, 1. stýrimaður, Hafnarfirði.
Ásgeir Þórðarson, 2. stýrimaður, Bergstaðastr. 37.
Valdemar Árnason, 1. vélstj. Hverfisgötu 16.
Jón Halberg Einarsson, 2. vélstj. Njálsgötu 39 B.
Magnús Brynjólfsson, loftskeytam. Lindargötu 14.
Jón Cornelius Pétursson, bátsm. Vesturg. 25 B.
Ólafur Jónsson, matsv. Laugav. 38.
Sigmundur Jónsson, Laugaveg 27.
Stefán Magnússon, Njálsgötu 32 B.
Jón Guðmundsson, Frakkast. -23.
Ólafur Gíslason, Hverfisgötu 32.
Þorbjörn Sæmundsson, Bergþ.g. 4.
Oddur Rósmundsson, Bergþ.g. 7.
Ólafur Brynjólfsson, Lindargötu 14.
Jónas Guðmundsson, Akranesi.
Sveinbjörn Elíasson, Bolungavík.
Sigurður Guðmundsson, Önundarf.
Sigurjón Jónsson, Bergstaðastr.30B.
Helgi Andrésson, Mjóstræti 4.
Jón Sigmundsson, Laugaveg 50.
Jón Hálfdánarson, Hafnarstr. 18.
Randver Ásbjörnsson, Rauðarárst. 9.
Jón Jónsson, Austurstræti 11.
Sigurður Lárusson, Bröttugötu 6.
Sigurður Jónsson, Miðstræti 8 B.
Sigurður Albert Jóhanness., Hvg.16.
Sveinn Stefánsson, Miðhús í Garði.
Þorlákur Einarsson, Rúfeyj., Breiðaf.
Jón Sigurðsson, Sveinseyri, Dýra .
Ólafur Þorleifss., kyndari, Vatnsst.4.
Björgvin Kr. Friðsteinsson, kyndari, Laufásvegi 27.
Jón Stefánsson, Sauðagerði C.

Með Fieldmarshal Robertson fórust þessir 29 Íslendingar:

Einar Magnússon, skipstjóri, Vesturgötu 57.
Björn Árnason, 1. stýrim., Lauf. 43.
Sigurður Árnason, 2. stýrim., frá Móum, Kjalarnesi.
Bjarni Árnason, Grund, Kjalarn.
Bjarni Eiríksson. bátsm., Hafnarf.
Jóhann Ó. Bjarnason. Óðinsg. 17 B.
Gunnl. Magnússon, Vesturgötu 57.
Einar Helgason, matsv., Patreksf.
Anton Magnússon, frá Patreksfirði.
Halldór Guðjónsson. Njáisg. 36 B.
Erlendur Jónsson, Hafnarfirði.
Þórður Þórðarson, Hafnarfirði.
Tómas Albertss., frá Teigi í Fljótshl.
Sigurjón Guðlaugsson, Hafnarfirði.
Valdemar Kristjánsson, Bræðrabst.24A
Halldór Sigurðsson, Akranesi,
Ólafur Erlendsson, Hafnarfirði.
Ól. Bjarni Indriðason, Patreksf.
Árni Jónsson ísfjörð, Þingh.str. 15.
Jón E. Ólafsson, Keflavík.
Einar Hallgrímsson, Hafnarfirði.
Magnús Jónsson, loftskeytam. Flatey
Jón Magnússon. Grettisgötu 53 A.
Vigfús Elísson, Hafnarfirði.
Óli Sigurðsson, Norðfirði.
Egill Jónsson, Hafnarfirði.
Óskar V. Einarsson, Vesturg. 30.
Kr. Karvel Friðriksson, Reykjavík.
Jóhannes Helgason, hjálparmatsv.Hafnarfirði.
Enski skipstjórinn hét Charles Henry Beard.

Heimild
Hænir, 12. tölublað (23. 3. 1925), blaðsíða 3
Ægir, sjómannablað. 19. árgangur 1926, 10. tölublað, bls. 197.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun vegna veðurs

    Viðvörun vegna veðurs

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Hring­veg­ur­inn lok­að­ur vegna árekst­urs

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Lögreglan leitar manns

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Ekið á gangandi vegfaranda

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?