Spurning um líf og dauða á hverri stundu
Halaveðrið kallast illviðri, sem varð á Halamiðum 7. – 8. febrúar 1925 út af Vestfjörðum. Veðrið brast á mjög snögglega um hádegið og umhverfðist sjórinn í einu vetfangi og varð ekki við neitt ráðið. Tveir togarar fórust.
Það voru Leifur heppni og Fieldmarshal Robertson en þeir voru við veiðar skammt hvor frá öðrum og þau skip sem næst voru misstu fljótlega sjónar af þeim. Leifur heppni var með talsverðan afla en ekki er vitað um hitt skipið. Óveðrið stóð yfir í hálfan annan sólarhring. Á Leifi heppna voru 33 íslenskir menn. Á Fieldmarshal Robertson voru 29 Íslendingar en auk þess voru á skipinu sex Englendingar.
Veifaði bróður sínum í hinsta sinn
Fjallað var um Halaveðrið í þætti á rúv.is og þar segir m.a. ,,Þegar upp var staðið voru 74 sjómenn sem var saknað, 32 konur misstu menn sína og 91 barn varð föðurlaust. Þá var hafin landssöfnun til styrktar ekkjum og börnum þeirra sem létust sem Steinar segir að hafi gengið mjög vel. Í bókinni er ein saga fyrir hvern togara. „Það voru 500 menn á sextán skipum, og mikil fjölskyldu- og ættartengsl á milli, meðal annars veifaði einn bróður sínum á Leifi heppna í síðasta sinn.“
Gunnar Hanson og Guðrún Gunnarsdóttir ræddu við Steinar J. Lúðvíksson í Mannlega þættinum á Rás 1 25. nóvember.
Spurning um líf og dauða á hverri stundu – 500 menn á sextán skipum, og mikil fjölskyldu- og ættartengsl á milli
Með Leifi heppna fórust þessir 33 menn:
Gísli M. Oddsson, skipstjóri, Skólavörðustíg 3 B.
Ingólfur Helgason, 1. stýrimaður, Hafnarfirði.
Ásgeir Þórðarson, 2. stýrimaður, Bergstaðastr. 37.
Valdemar Árnason, 1. vélstj. Hverfisgötu 16.
Jón Halberg Einarsson, 2. vélstj. Njálsgötu 39 B.
Magnús Brynjólfsson, loftskeytam. Lindargötu 14.
Jón Cornelius Pétursson, bátsm. Vesturg. 25 B.
Ólafur Jónsson, matsv. Laugav. 38.
Sigmundur Jónsson, Laugaveg 27.
Stefán Magnússon, Njálsgötu 32 B.
Jón Guðmundsson, Frakkast. -23.
Ólafur Gíslason, Hverfisgötu 32.
Þorbjörn Sæmundsson, Bergþ.g. 4.
Oddur Rósmundsson, Bergþ.g. 7.
Ólafur Brynjólfsson, Lindargötu 14.
Jónas Guðmundsson, Akranesi.
Sveinbjörn Elíasson, Bolungavík.
Sigurður Guðmundsson, Önundarf.
Sigurjón Jónsson, Bergstaðastr.30B.
Helgi Andrésson, Mjóstræti 4.
Jón Sigmundsson, Laugaveg 50.
Jón Hálfdánarson, Hafnarstr. 18.
Randver Ásbjörnsson, Rauðarárst. 9.
Jón Jónsson, Austurstræti 11.
Sigurður Lárusson, Bröttugötu 6.
Sigurður Jónsson, Miðstræti 8 B.
Sigurður Albert Jóhanness., Hvg.16.
Sveinn Stefánsson, Miðhús í Garði.
Þorlákur Einarsson, Rúfeyj., Breiðaf.
Jón Sigurðsson, Sveinseyri, Dýra .
Ólafur Þorleifss., kyndari, Vatnsst.4.
Björgvin Kr. Friðsteinsson, kyndari, Laufásvegi 27.
Jón Stefánsson, Sauðagerði C.
Með Fieldmarshal Robertson fórust þessir 29 Íslendingar:
Einar Magnússon, skipstjóri, Vesturgötu 57.
Björn Árnason, 1. stýrim., Lauf. 43.
Sigurður Árnason, 2. stýrim., frá Móum, Kjalarnesi.
Bjarni Árnason, Grund, Kjalarn.
Bjarni Eiríksson. bátsm., Hafnarf.
Jóhann Ó. Bjarnason. Óðinsg. 17 B.
Gunnl. Magnússon, Vesturgötu 57.
Einar Helgason, matsv., Patreksf.
Anton Magnússon, frá Patreksfirði.
Halldór Guðjónsson. Njáisg. 36 B.
Erlendur Jónsson, Hafnarfirði.
Þórður Þórðarson, Hafnarfirði.
Tómas Albertss., frá Teigi í Fljótshl.
Sigurjón Guðlaugsson, Hafnarfirði.
Valdemar Kristjánsson, Bræðrabst.24A
Halldór Sigurðsson, Akranesi,
Ólafur Erlendsson, Hafnarfirði.
Ól. Bjarni Indriðason, Patreksf.
Árni Jónsson ísfjörð, Þingh.str. 15.
Jón E. Ólafsson, Keflavík.
Einar Hallgrímsson, Hafnarfirði.
Magnús Jónsson, loftskeytam. Flatey
Jón Magnússon. Grettisgötu 53 A.
Vigfús Elísson, Hafnarfirði.
Óli Sigurðsson, Norðfirði.
Egill Jónsson, Hafnarfirði.
Óskar V. Einarsson, Vesturg. 30.
Kr. Karvel Friðriksson, Reykjavík.
Jóhannes Helgason, hjálparmatsv.Hafnarfirði.
Enski skipstjórinn hét Charles Henry Beard.
Heimild
Hænir, 12. tölublað (23. 3. 1925), blaðsíða 3
Ægir, sjómannablað. 19. árgangur 1926, 10. tölublað, bls. 197.