• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fast lágt raforkuverð í Noregi

Fast lágt raforkuverð í Noregi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. febrúar 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Af hverju ekki á Íslandi líka?

Ríkisstjórnin í Noregi hefur kynnt tillögur sínar um að frá 1. október 2025 geti heimili gert fastverðssamninga um rafmagn á 40 aura/kWh, sem jafngildir um 5 íslenskum krónum á hverja kílóvattstund rafmagns. Í samanburði er raforkuverð til heimila á Íslandi 10-13 kr/kWh og fer hækkandi. Með þessu verður raforka til heimila meira en helmingi lægri í Noregi en á Íslandi. En undanfarið hefur raforkuverð í Suður-Noregi verið allt að þrefalt hærra en á Íslandi.

Neytendasamtökin sjá ekkert því til fyrirstöðu að hægt sé að tryggja lágt raforkuverð til íslenskra heimila, nema ef vera skyldi viljinn. En samtökin hafa lengi lagt áherslu á verðöryggi rafmagns til heimila og hvetja íslensk stjórnvöld til að skoða norsku leiðina. Hér má sjá nánar um tillögur Neytendasamtakanna.

Þann 12. desember 2023 samþykkti stjórn Neytendasamtakanna ályktun um raforku á sanngjörnu verði:
„Núverandi áform stjórnvalda og háværar kröfur einstakra markaðsaðila um breytingar á lögum um raforku fela í sér verulega hættu á verðhækkunum til heimila. Lög skylda sveitarfélög til að afhenda heimilum landsins vatn á viðráðanlegu verði og með afar hóflegri arðsemi. Hið sama á að gilda um raforku. Ríkið hefur þegar skuldbundið sig til þess, sbr. Evróputilskipun 2009/72/ESB.
Stjórn Neytendasamtakanna krefst þess að þingmenn tryggi að þak verði sett á arðsemi raforku til heimila.“

Á aðalfundi Neytendasamtakanna þann 22. október 2024 var eftirfarandi ályktun samþykkt:
„Aðalfundur Neytendasamtakanna 2024 krefst þess að stjórnvöld setji arðsemisþak á sölu rafmagns til heimila. Raforka er ein forsenda búsetu á Íslandi og afar ólík vörum á frjálsum markaði. Heimilin neyðast nú til að keppa við stórfyrirtæki um rafmagn, sem meðal annars hefur leitt til 13% verðhækkunar síðustu tólf mánuði.
Heimilin nota aðeins 4,6% af allri framleiddri raforku á Íslandi og stjórnvöld verða að tryggja þeim ekki bara afhendingaröryggi heldur einnig verðöryggi.
Með arðsemisþaki á sölu rafmagns til heimila væri raforka sett undir sama hatt og kalt og heitt vatn og flutningur á raforku, þar sem nú þegar er þak á arðsemi.“

Aðalfundur Neytendasamtakanna krefst þess að stórir raforkuframleiðendur verði skyldaðir til að veita 5% af framleiðslu sinni til heimila og selja með takmarkaðri arðsemi. Ódýrt rafmagn til heimila er réttmætt gjald fyrir nýtingu sameiginlegra náttúruauðlinda og stuðlar að þjóðarsátt um nauðsynlegar virkjanir.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Strandveiðar hefjist 15. mars til fyrsta október

    Ný reglugerð um strandveiðar hefur tekið gildi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Kona handtekin fyrir líkamsárás

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • 30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Þjófur sendur úr landi

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?