Fyrirhugað er að Bretland gangi úr Evrópusambandinu þann 29. mars nk. en óvissa ríkir um hvort útgöngusamningur Bretlands og Evrópusambandsins verði samþykktur. Fari svo að Bretland yfirgefi ESB án samnings er mikilvægt að stjórnvöld og hagsmunaaðilar verði undir það búin. Bretland mun þá teljast þriðja ríki samkvæmt þeim reglum EES samningsins um matvælaöryggi sem gilda um inn- og útflutning matvæla frá Íslandi. Matvæli sem framleidd eru í ESB/EES ríkjum og í samræmi við matvælalöggjöf ESB eru í frjálsu flæði innan innri markaðarins. Í þessu felst að ekki er þörf á vottun yfirvalda vegna útflutnings matvæla (dýraafurða) frá Íslandi til annarra ríkja innan ESB/EES. Né heldur er þörf á opinberu heilbrigðisvottorði með dýraafurðum sem fluttar eru til Íslands frá þessum sömu ríkjum.
Hins vegar gilda ströng skilyrði um innflutning matvæla frá þriðju ríkjum, þ.e. ríkjum sem ekki eru innan EES. Slíkum matvælum (þ.e. dýraafurðum og tilteknum öðrum vörum) skal fylgja opinbert heilbrigðisvottorð og skulu þær skráðar í sérstakt skráningarkerfi (Traces) og eingöngu má flytja þær inn um landamærastöðvar þar sem innflutningseftirlit fer fram.
Innflutningur dýraafurða til Íslands frá Bretlandi
- Framleiðandi (starfsstöð) í Bretlandi skal vera skráður á opinberan lista yfir starfsstöðvar í þriðju ríkjum. Breytt skráning viðkomandi starfsstöðva er þegar í undirbúningi hjá Evrópusambandinu.
- Sending skal skráð í Traces með a.m.k. 24ra klukkustunda fyrirvara.
- Heilbrigðisvottorð gefið út af dýralæknayfirvöldum í Bretlandi skal fylgja sendingunni.
- Innflutningseftirlit af hálfu MAST mun fara fram á landamærastöð (nánari upplýsingar um landamærastöðvar á Íslandi).
- Breskar starfsstöðvar munu ekki lengur hafa heimild til þess að nota merkinguna „EC“ og í stað „UK“ skal merkja með „GB“ eða „United Kingdom“ (auk þess „JE“ fyrir Jersey, „Guernsey“ og „IM“ fyrir Isle of Man þegar við á).
Útflutningur dýraafurða frá Íslandi til Bretlands
Hvað útflutning matvæla frá Íslandi til Bretlands varðar hafa bresk stjórnvöld gefið til kynna að ekki verði gerð krafa um heilbrigðisvottorð frá ESB/EES ríkjum, í a.m.k. 6 mánuði eftir útgöngu. Upplýsingar hafa verið birtar á vef breskra stjórnvalda og er nánari leiðbeininga að vænta. Nýtt skráningarkerfi (IPAFFS) fyrir innflutning afurða til Bretlands verður tekið í notkun eftir útgöngu en fyrst um sinn skal það notað til skráningar innflutnings frá þriðju ríkjum. Óvíst er hvort og hvenær nota skuli IPAFFS til að skrá innflutning dýraafurða frá ESB/EES ríkjum.
Ítarefni
- Upplýsingar á vef Evrópusambandsins: preparedness notices (leiðbeiningar varðandi dýraafurðir er að finna undir kaflanum „sante“)
- Upplýsingar á vef breskra stjórnvalda varðandi innflutning dýraafurða