• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tveir létust með Covid-19 – Landspítali á neyðarstigi

64 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. mars 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
64 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Fjórir eru á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél. Meðalaldur innlagðra er 67 ár. Tveir karlmenn á áttræðisaldri með COVID-19 létust á gjörgæsludeild 7. mars. 
  • Ekki eru lengur birtar tölur um fjarþjónustu vegna þess að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Læknavaktin hafa tekið við þeirri þjónustu.
    Landspítali sinnir áfram göngudeildarþjónustu COVID-19 veikra.

Landspítali er á neyðarstigi

Í dag liggja 64 sjúklingar með COVID á Landspítala, 60 eru í einangrun með virkt smit. Fjórir eru á gjörgæslu, allir í einangrun og tveir í öndunarvél.
Í gær bættust 19 sjúklingar í COVID hópinn og 11 útskrifuðust, þar af létust tveir karlmenn með COVID á gjörgæsludeildum. Nú eru COVID sjúklingar á 14 legudeildum spítalans. Staðan á Landspítala er því áfram mjög þung.

Veruleikinn á Landspítala er í takt við útbreiðslu samfélagslegs smits sem er gríðarleg og má ætla að tíundi hver maður sé með smitandi COVID um þessar mundir. Þó að fyrir flesta séu veikindin ekki mikil og hlutfallslega fáir þurfi sjúkrahúsinnlögn þá streyma nú inn á spítalann einmitt þeir einstaklingar sem hingað til hefur verið lögð hvað mest áhersla á að verja, þ.e. ónæmisbældir og fólk með alvarlega undirliggjandi sjúkdóma s.s. hjarta- og lungnasjúkdóma og krabbamein auk aldraðra sem þola ekki álagið af sýkingunni og geta hlotið skaða af. Þeir eru í hættu á að verða fyrir færniskerðingu vegna veikindanna og að komast jafnvel ekki aftur heim til sín að meðferð lokinni.

Þetta er veruleiki sem allir landsmenn verða að gera sér grein fyrir og að ábyrgð hvers og eins er mikil gagnvart ættingjum og vinum sem standa höllum fæti heilsufarslega séð. Það er ekki bara Landspítali sem á í erfiðleikum núna heldur allt heilbrigðiskerfi landsins. Heilbrigðisstofnanir heyja nú varnarbaráttu og leita allra leiða til að komast í gegnum þessa erfiðu tíma. Mönnun og legurými eru áfram stærstu áskoranirnar.

Farsóttanefnd leggur allt kapp á að verja inniliggjandi sjúklinga fyrir smiti og að fletja kúrfuna hvað veikindi starfsmanna varðar. Því er einboðið að heimsóknarbann verður áfram þar til þessu ástandi slotar. Áfram er í höndum einstakra stjórnenda að veita undanþágur en fólk er beðið um að sýna þessu skilning og sýna jafnframt starfsfólkinu okkar hlýju og stuðning þegar þau eru að framfylgja reglum.

Áður hafði verið tilkynnt um mannabreytingar í farsóttanefnd en niðurstaðan er sú að Hildur Helgadóttir sem verið hefur verkefnisstjóri nefndarinnar tekur nú við formennsku í henni tímabundið eða þar til ráðinn hefur verið nýr yfirlæknir smitsjúkdómalækninga eða skipað hefur verið í nefndina að nýju.

Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.

Umræða
Share47Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    181 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?