• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

111% aukning í innlendri netverslun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. apríl 2020
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0
Greiðslukortavelta Íslendinga dróst saman um 12,5% í mars síðastliðnum samanborið við mars í fyrra. Kortavelta í verslun er samt í heildina nær óbreytt frá sama mánuði í fyrra en þjónustuflokkarnir taka höggið. Netverslun ríflega tvöfaldast á milli ára.
Heildarvelta greiðslukorta Íslendinga hérlendis í mars síðastliðnum nam 56,4 milljörðum kr. samanborið við 64,4 ma. í mars 2019. Samdrátturinn nemur því 12,5% að nafnvirði á milli ára. Þegar einungis er litið til kortaveltu í verslun hefur orðið lítil breyting á milli ára að nafnvirði, eða um -0,72%. Töluverður munur er þó á milli flokka verslunar þar sem velta eykst í sumum flokkum en dregst saman í örðum.
Netverslun jókst um 111% á milli ára og var í stöðugum vexti allan mánuðinn. Að neðan má sjá mynd af því hvernig netverslun þróaðist innan mánaðarins sem hluti af verslun í heild.
 
Netverslun í mars 2020 nam 1,7 milljarði samanborið við rúmar 800 milljónir í mars 2019.
Velta jókst í dagvöru og stórmörkuðum, raftækjum, byggingavöru, lyfsölu og áfengi
Dagvöruverslun og stórmarkaðir er stærsti flokkurinn í verslun en þar jókst kortaveltan um tæp 12% á milli ára í mars eða um 1,7 milljarða og nam tæpum 16 milljörðum. Þess ber að geta að flest mötuneyti vinnustaða og veitingahús hafa dregið úr kaupum á matvælum frá heildsölum og þau kaup hafa líklega færst í kaup einstaklinga í  dagvöruverslunum.
Í raftækjaverslun jókst kortavelta í mars um 29% samanborið við sama mánuð í fyrra og nam tæpum tveimur milljörðum. Þá jókst kortavelta í byggingavöruverslun um 9% og nam 2,1 milljarði í liðnum marsmánuði. Hugsanlegt er þó að heildarvelta byggingavöruverslana hafi þróast með öðrum hætti enda eru reikningsviðskipti iðnaðarmanna ekki talin með í kortaveltu.
Kortavelta í lyfja-, heilsu og snyrtivöruverslunum jókst um 18% á milli ára, og um heil 177% á netinu frá mars í fyrra. Loks jókst kortavelta í áfengisverslun um tæp 22% á milli ára og nam 2,2 milljörðum í mars síðastliðnum.
Samdráttur var sölu eldsneytis fata og heimilisbúnaðar
Eldsneytissala dróst saman um 19% á milli ára í mars og nam 3,8 milljörðum í mánuðinum sem leið. Þetta rímar ágætlega við tölfræði Vegagerðarinnar en samkvæmt henni var 21% minni umferð á Höfuðborgarsvæðinu í mars nú en í fyrra. Þessar tölur eru að nafnvirði en eldsneytisverð lækkaði bæði á milli ára og innan marsmánaðar í ár.
Fataverslun á við mikinn samdrátt að stríða. Kortavelta í fataverslun dróst saman um 36% og nam 1,4 milljarði í marsmánuði samanborið við 2,2 milljarða í mars 2019. Þá var 15% samdráttur í verslun með heimilisbúnað. Vert er að taka fram að netverslun jókst mikið á milli ára, jafnvel í þeim flokkum þar sem heildarvelta dróst saman. Þannig jókst netverslun með föt um 135% og netverslun með heimilisbúnað um 177% á milli ára í mars.
Rauðar tölur í þjónustu
Innlend kortavelta veitingastaða dróst saman um 31% í mars og nam 3,4 milljörðum samanborið við 5 milljarða í fyrra. Menningartengd þjónusta svo sem söfn, tónleikastaðir, leikhús og bíó dróst saman um 32% samkvæmt kortaveltutölunum en veltan í þessum flokkum nam samtals 1,7 milljarði í mars síðastliðnum samanborið við 2,5 milljarða í mars í fyrra.
Kortavelta snyrtistofa og áþekkra aðila dróst saman um 24% í mánuðinum sem leið en starfsemi þessara aðila var bönnuð með hertu samkomubanni þann 24. mars. Að neðan má sjá mynd af kortaveltu snyrti- og rakarastofa
Þá var mikill samdráttur í innlendri kortaveltu í flokka ferðaþjónustu. Þannig minnkaði innlend kortavelta gistiþjónustu um 46% og innlend kortavelta ferðaskrifstofa um 82% í mars síðastliðnum. Raunar jókst innlend velta bílaleiga um 5,6% í mars. Mögulega má skýra þann vöxt með því að fleiri hafi kosið að nýta bílaleigubíla í stað almenningssamgangna til að gæta að smitvörnum.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?