Laust eftir kl. 13:00 á föstudag fengu viðbragðsaðilar á Akureyri tilkynningu um að snjóflóð hefði fallið á svæðinu ofan við skíðasvæðið í Hlíðarfjalli og hafi einn skíðamaður, sem þar var á ferðinni, lent í því.
Með honum í för voru þrír aðilar sem komu honum til aðstoðar, hann grófst ekki í flóðinu, en var slasaður eftir. Var aðgerðastjórn virkjuð á Akureyri og björgunarsveitin Súlur á Akureyri kölluð út til aðstoðar daglegum viðbragðsaðilum.
Með aðstoð starfsmanna í Hlíðarfjalli voru sjúkraflutingamenn fluttir á slysavettvang og bjuggu þeir um hinn slasaða til flutnings sem var síðan fluttur á SAk til aðhlynningar. Ekki er vitað um ástand hins slasaða að svo stöddu.
Umræða