Tilkynnt var um meðvitundarlausa konu á veitingastað í miðbænum. Þegar lögregla og sjúkralið kom á vettvang kom í ljós að um var að ræða mikla ölvun og konan reyndist vera með meðvitund. Þegar lögregla ætlaði svo að ræða við hana, neitaði hún að gefa upp persónuupplýsingar og grýtti glasi í jörðina þannig að það brotnaði. Konan var því handtekin og færð á lögreglustöð.
Tilkynnt var um þriggja bíla árekstur á Sæbrautinni Sprengisand. Engin meiðsli á fólki en bifreiðar nokkuð tjónaðar. Þá var tilkynnt um tilraun til að taka út lyf í apóteki með fölsuð skilríki. Lögregla kom á vettvang og afgreiddi málið með skýrslu á staðnum.
Tilkynnt um aðila sem veittist gegn lækni á bráðamóttökunni. Ástandið var orðið rólegt þegar lögregla kom á vettvang en árásaraðili handtekinn og vistaður þangað til það rennur af honum og hægt verður að taka af honum skýrslu. Þá var ekið á gangandi vegfarandi. Þegar þetta er ritað er ekki vitað um alverleika áverka en var sá slasaði fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild.
Aðili var handtekinn og vistaður í fangageymslu, fyrir að veitast að öðrum með barefli. Tekin verður skýrsla af honum síðar en ekki er vitað hvort árásarþoli er mikið slasaður eða ekki þegar þetta er ritað.