Samdrátturinn um 45% miðað við sama tímabil í fyrra
Nýskráningar fólksbifreiða frá áramótum og til 6. júní eru nú orðnar 3.491 og nemur samdrátturinn um 45% miðað við sama tímabil í fyrra. Tesla er söluhæsta merkið en alls hafa selst 463 bifreiðar af þeirri tegund.
Toyota er í öðru sæti með 450 bíla og Kia í þriðja sæti með 274. Þar á eftir koma Hyundai og Volkswagen.
Í nýskráningum það sem af er árinu er hlutdeild rafbíla 28%, bensínbíla 21,6%, dísilbíla 18,4%, tengiltvinn 17,5% og Hybrid 13,2%. Samkvæmt samantekt FÍB.
Rafmangsreikningurinn mun hækka vegna undirritunar raforkulaga um Orkupakka
https://gamli.frettatiminn.is/rafmangsreikningurinn-mun-haekka-vegna-undirritunar-raforkulaga-um-orkupakka/
Umræða