• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Íslendingar mega éta það sem úti frýs! – 32 milljarðar í hælisleitendur

Íslendingar mega éta það sem úti frýs! – 32 milljarðar í hælisleitendur

JL húsið og að éta það sem úti frýs…

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. október 2024
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Góður vinur minn var nýlega búinn að flytja til Grindavíkur þegar jarðhræðingar hófust og eldgosið hófst. Hann ásamt fjölskyldu sinni og íbúum Grindavíkur, þurftu að flýja heimilin sín í snatri. Vikur liðu, mánuðir og í ljós kom að Grindvíkingar voru ekki að fara heim aftur.

Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar

Vinur minn og fjölskylda lentu á algjörum hrakhólum. Þau fengu inni hjá ættingjum fyrstu dagana þegar eldsumbrotin hófust. Þeirra gististaðir voru m.a. þessir; Sumarbústaður í Grímsnesinu þar sem þau þurftu að keyra á milli til Reykjavíkur vegna vinnu, svefnsófinn hjá frændfólki og skipta sér upp með gistingu, pabbinn með strákana og mamman með dóttur þeirra. Það tók þau marga mánuði að fá aðstoð frá yfirvöldum sem settu upp kaffistofu til að vonast til að það myndi leysa líðan þeirra. Yfirvöld höfðu fá úrræði í fyrstu og fjölskyldunni leið eins og þau væru flóttamenn í eigin landi.

Frú Ragnheiður, verkefni Rauða krossins sem er skaðaminnkandi úrræði fyrir fólk í mikilli neyslu og er heimilislaust, sendir reglulega frá sér tilkynningu um að þeim vanti tjöld, svefnpoka og teppi. Skjólstæðingar þeirra þurfa þetta. Fólk sem sefur úti og á ekki heimili.

Gistiskýli Reykjavíkurborgar er yfirfullt og þarf oft að vísa mönnum þaðan burt vegna plássleysis. Þeirra sem ekki fá inni bíða ruslageymslur, bílastæðahús, húsaskot og annað sem næturstaður þeirra þá nóttina. Að morgni – ef þeir lifa nóttina af – takast þeir á við aðra áskorun og lífsins baráttu.

Konukot er neyðarskýli fyrir heimilislausar konur í Reykjavík. Konukot hefur gistirými fyrir 12 konur, sem er fyrir löngu sprungið og orðið óíbúðarhæft. En þar gista oftast hátt í 30 konur í einu. Úrræðið er lokað á daginn og aðeins gisting yfir nóttina. Að morgni þurfa konur að fara út í harkið í öllum veðráttum.

Við JL húsið er nú verið að setja upp íbúðarkjarna fyrir 400 hælisleitendur. Í kjarnanum, sem verið er að taka í gegn eru m.a. fjölskylduherbergi. Á staðnum verður allt til alls og öryggisgæsla allan sólarhringinn. Hælisleitendur fá herbergi sér að kostnaðarlausu sem auk þess eru á framfærslu frá ríkinu.

Hundruð milljarðar hafa farið í þennan málaflokk

Kostnaður við húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur nam tæplega fimm milljörðum króna árið 2023 og áætlaður kostnaður fyrir þetta ár er tæplega 4,7 milljarðar samkvæmt upplýsingum sem félagsmálaráðherra hefur látið hafa eftir sér. Og hann vill bæta í enn meira. Hann vill auka við þessa upphæð og telur að kostnaðurinn fari í 32 milljarða.

Á meðan þessi gjörningur ráðherra og ríkisstjórnarinnar er gerður þá þurfa konurnar í Konukoti að sofa á dýnum í hornum í Konukoti og vera farnar út á morgnana. Menn sem fá ekki inn í Gistiskýlið sofa í sorpgeymslum. Frú Ragnheiður lætur skjólstæðinga sína fá tjald, teppi og svefnpoka.

Vinur minn í Grindavík er enn að berjast við að reyna kaupa sér íbúð í trylltu umhverfi fasteignamarkaðarins. Hann leigir íbúð núna – með aðstoð frá ríkinu – sem loksins greip fólkið frá Grindavík.

Á meðan renna 32 milljarðar (þrjátíu og tvö þúsund milljónir) í hælisleitendur sem streyma hér inn í kerfið á Íslandi. Á meðan má í raun með skilaboðum yfirvalda segja; Íslendingar mega éta það sem úti frýs!

Lýðræðisflokkurinn ætlar að taka þennan kapal núverandi ríkisstjórnar og málefni hælisleitenda og henda í burtu spilunum. Ný spil verða lögð á borðið og tímabundin lokun á landamærum gerð, eftirlit hert enn frekar, aukið í lið lögreglu, landamærvarða og tollgæslu. Krafist verður vegabréfsáritunar og kerfi sett upp til að stöðva flæði fólks.

Engir hælisleitendur til landsins í bili – á meðan verið er að leysa innviðavanda landsins og byggja það upp á nýtt. Hundruð milljarðar hafa farið í þennan málaflokk og nú þarf að stöðva þessa þvælu.

Höfundur er í stjórn Lýðræðisflokksins og er annt um Íslendinga og íslenskt samfélag.

Umræða
Share36Tweet23
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    148 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?