• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Barnaverndarkerfið á Íslandi er skrípaleikur“

,,Barnaverndarkerfið á Íslandi er skrípaleikur“

,,Þetta er bara leikrit"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. október 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Umboðsmaður barna hefur sent Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, bréf þar sem hún óskar eftir rannsókn á afdrifum barna sem hafa verið vistuð í meðferðarúrræðum á vegum ríkisins. Langvarandi úrræðaleysi hafi ríkt í málaflokknum og ýmsar vísbendingar séu um að þessi hópur standi höllum fæti í samfélaginu á fullorðinsaldri.

Fjallað er um málaflokkin á vef ríkisútvarpsins og þar segir:  Móðir unglingsdrengs með fíknivanda kallar meðferðarúrræði fyrir ungmenni hér á landi skrípaleik.

Afreksmaður í íþróttum og fyrirmyndarnemandi

Sonur Ingibjargar Einarsdóttur er á fimmtánda ári. Fyrirmyndarnemandi og afreksmaður í íþróttum. Hann æfði með landsliðinu í fimleikum og var að búa sig undir Evrópumót í mars í fyrra þegar uppákoma í skólanum varð til þess að hann einangraðist og fór að fikta við áfengi.

„Ég var búin að óska eftir að fá beiðni til sálfræðinga og þeir byrjuðu strax að óska eftir úrræðum. Og svo er það þannig að greyið barnaverndarstarfsmennirnir, það er aldrei neitt nóg þegar þau eru að reyna að selja Barna- og fjölskyldustofu það að þau þurfi úrræði. Þetta fólk er eins og fasteignasalar, að reyna að selja þeim að vandi barnsins sem þau eru með sé það mikill að þau þurfi úrræði,“ segir Ingibjörg í viðtali við rúv.

Þetta er bara leikrit

Ingibjörg kom tvisvar að syni sínum meðvitundarlausum vegna áfengisdrykkju. Fljótlega færði hann sig yfir í harðari efni og var sendur í neyðarvistun á Stuðlum. Eftir að vistuninni lauk ákvað Ingibjörg að fara með drenginn til útlanda á meðan þau biðu eftir úrræðum sem búið var að lofa.

„Og það er eins og það er, það var ekki neitt. Og það er ekki samþykkt í meðferð fyrr en ég enda með barnið í þriðja skiptið meðvitundarlaust og meðvitundarlaust í sólarhring, og það var út af hættulegri efnum,“ segir Ingibjörg í viðtalinu.

,,Þetta er bara skrípaleikur, þetta er ekkert annað“

„Þannig ég bíð með barnið milli vonar og ótta. Hann var inn og út af neyðarvistun. Þetta var hræðilegur desember. Og maður var með líf barnsins með lúkunum til 11. febrúar. Og svo í gegnum allan tímann eru börnin endalaust í daglegum. Þannig börnin eru ekkert edrú, þau fara bara og sækja efni, og sækja jafnvel fyrir vinina og koma með inn. Og fyrir utan það, þá er engin meðferðarvinna þarna í gangi,“ segir Ingibjörg.

Þetta er bara leikrit. Þetta er ekki meðferð. Þetta er bara skrípaleikur, þetta er ekkert annað.“
Þá eigi börnin auðvelt með að komast í fíkniefni inn á Stuðlum. ,,Og það er bara vegna þessara leyfa og líka þess að þau komast óséð inn og út um hurðar og glugga. Það er ekkert eftirlit.“

Umræða
Share2Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    153 deilingar
    Share 61 Tweet 38
  • Sturluð staðreynd

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Mikilvægar upplýsingar um berkla og berklasmit

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Silja Bára rektor fær á sig vantrauststillögu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?