Það eru ekki aðeins stúdentar og starfsmenn sem halda til á háskólasvæðinu heldur einnig stór hópur grágæsa. Þessar gæsir eru ekki villtir fuglar í hefðbundnum skilningi heldur hafa þær aðlagað hegðun sína að borgarlífinu og lifa í nokkuð nánu sambýli við manninn.
Þær eru svo spakar að þær ganga í makindum um götur, bílastæði og göngustíga í Skeifunni eins og hverjir aðrir háskólaborgarar og hafa meira að segja sést innandyra í Aðalbyggingu.
Við viljum góðfúslega hvetja ökumenn og gangandi vegfarendur til að sýna gæsunum tillitsemi, þær eru nefnilega ekki vel lesnar í umferðarreglunum þrátt fyrir návígi við Háskólann og bílana. Farið varlega þegar ekið er um háskólasvæðið og leyfið þessum fiðruðu félögum okkar að njóta sín á sínum eigin forsendum.
Þótt þær séu ekki á leið í tíma eru þær samt fullgildir háskólaborgarar.

——————————————
It is not only students and staff who reside on the university campus – a large flock of Greylag Geese lives here too. These geese aren’t wild birds in the traditional sense; instead, they’ve adapted their behaviour to city life and live in close proximity to humans. They are so accustomed to people that they stroll peacefully across roads, car parks, and walkways on campus just like any other university community member; they have even been spotted inside the Main Building.
We kindly urge drivers and pedestrians to show consideration for the geese. Despite their proximity to the University and cars, they aren’t exactly well-versed in traffic laws.
Please drive carefully when navigating the campus and allow these feathered colleagues of ours to enjoy the area on their own terms. Even if they aren’t heading to a lecture, they are still valued members of the university community.
Umræða

