Smámsaman fer þeim fjölgandi líkankeyrslunum sem sýna öra dýpkun óveðurslægðarinnar á þriðjudag.
Þessi útgáfa hér er sú nýjasta hjá GFS (8.des kl. 18). Kortið gildir kl. 15 á þriðjudag (10. des). Við sjáum að spáð er lægðarmiðju 948 hPa yfir Suðurlandi og gríðarlega öflugur vindstrengur vestan og norðan við miðjuna. Jafnvel er það svo á þessu korti að jafnþrýstilínurnar renna nær saman.
Sjálf lægðin virðist ætla að „taka lykkjuna“ yfir landinu um leið og hún dýpkar. Það þýðir að hún kemur úr suðvestri yfir austanvert landið, sveigir síðan til vesturs og suðvesturs og verður nærri kominn hringinn þarna kl. 15 á þriðjudaginn. Spá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar frá því fyrr í kvöld er svipuð.
N og NA illviðri af þessari gerð eru fremur fátíð og geta verið sérlega skeinuhætt norðan- og vestanlands.
Nú er að bíða og sjá hvort þróunin verði í þessa veru eða að eitthvað í loftstraumunum komi til að með að breyta þessari meginmynd. Lægðin er þegar farin að taka á sig mynd og líklega verður þetta orðið enn skýrara í fyrramálið þegar 24-36 tímar verða til stefnu.
Hefur þú áhuga á að sjá Fréttatímanum vaxa og dafna áfram sem frjálsan og óháðan?– Með því að styrkja Fréttatímann mánaðarlega eða einu sinni, stuðlar þú að því.
Umræða