• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Framhald Verbúðarinnar í fæðingu á Alþingi

Sigurjón Þórðarson, alþingismaður, skrifar

Fara tímabundið með nýtingarrétt á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar

,,Undarlegt að SFS sé að beina kröftum sínum að því að drepa niður alla nýliðun og frelsi"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. janúar 2025
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Vanstilling SFS

Viðbrögð talsmanna stórútgerðarinnar við ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið svigrúm til handfæraveiða einkennist af jafnvægisleysi. Framkvæmdastjóri SFS leggst jafnvel svo lágt að; halla réttu máli, fara með ýkjur og atvinnuróg gagnvart veiðum smábáta sem ég ætla ekki að fjalla um í þessu greinarkorni, hvað sem síðar verður.

Mér finnst þetta mjög miður þar sem hagsmunir stórútgerða og smábáta fara saman á mörgum sviðum og því undarlegt að SFS sé að beina kröftum sínum að því að drepa niður alla nýliðun, frelsi og vaxtarbrodda í greininni.

Fyrirfram hefði maður talið vænlegra fyrir þá sem fara tímabundið með nýtingarrétt á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar að sýna meiri stillingu og sanngirni í umræðunni.

Vissulega er það ekkert nýtt að menn hafi farið fram úr sér m.a. forstjóri Síldarvinnslunnar, Gunnþór Björn Ingvason sem fór mikinn á fundi fyrir nokkrum árum þegar fram fór umræða um breytingar á kvótakerfinu. Á einum fundinum tók hann upp ljósmynd af börnum sínum og lýsti yfir mikilli örvæntingu um örlög barnanna.

Mögulega metur forstjórinn það svo að þetta upphlaup hafi skilað tilætluðum árangri þar sem áramótaávarp hans einkennist af vanstillingu og ýkjum vegna strandveiða. Boðaði forstjórinn uppsögn sjómanna, fækkun skipa og lokun á fiskvinnslum.

Það vita það allir Seyðfirðingar og þá væntanlega Gunnþór betur en aðrir að lokun fiskvinnslunnar Gullbergs á Seyðisfirði hafði ekkert með strandveiðar að gera heldur vantaði meira hráefni í risavinnslu Samherja. Á hinn bóginn tryggja strandveiðar áframhaldandi líf í höfnum Austurlands, burt séð frá hrókeringum höfðingja stórútgerðarinnar.

Búsorgir stórútgerðarinnar vegna strandveiða eru stórundarlegar, þar sem miklu nær væri að hafa áhyggjur af fiskveiðiráðgjöfinni. Á örfáum árum þá hafa veiðiheimildir í þorski dregist saman um 60 þús. tonn og viðmiðunarstofninn er metinn hafa dregist saman um mörg hundruð þúsund tonn, þrátt fyrir að ráðgjöfinni hafi verið fylgt út í ystu æsar!

Sama má segja um loðnuveiðarnar – þær eru nú svipur hjá sjón miðað við hvað þær voru áður. Gott ef loðnuveiði síðustu tveggja áratuga sé ekki innan við þriðjungur af því sem veiðin var áratugina tvo þar á undan.

Vissulega vona ég Gunnþóri og börnunum hans hafi vegnað vel en að sama skapi þá væri óskandi að hákarlar stórútgerðarinnar héldu örlítið aftur af kappi og gróðafíkn sinni með það fyrir augum að gefa smáseyðunum í greininni líf, en þeir litlu eiga víst börn einnig.

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi

Landssamband smábátaeigenda býður ríkinu vegleg veiðigjöld

Umræða
Share2Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    411 deilingar
    Share 164 Tweet 103
  • Næsta lægð nálgast

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?