• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 11. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Finnland sinnir loftrýmisgæslu á Íslandi

Finnland sinnir loftrýmisgæslu á Íslandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. janúar 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Flugsveit finnska flughersins er væntanleg til landsins í lok janúar, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af fjórum F/A-18 Hornet orrustuþotum og allt að 50 liðsmönnum. 

Um er að ræða fyrstu loftrýmisgæslu Finna á Íslandi eftir að þeir gengu í Atlantshafsbandalagið. Flugsveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

„Þátttaka Finna í loftrýmisgæslu á Íslandi markar mikilvæg tímamót og sýnir með áþreifanlegum hætti hvernig aðild þessarar norrænu vinaþjóðar Íslendinga að Atlantshafsbandalaginu styrkir og dýpkar varnarsamvinnu okkar og eykur öryggi Íslendinga,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.  

Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlangshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands. Varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands annast framkvæmd verkefnisins, í umboði utanríkisráðuneytisins, í samstarfi við Isavia.

Með fyrirvara um veður er gert ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 24. janúar til 7. febrúar.

Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok febrúar.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Vitni óskast að banaslysi

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Húsnæðiskaup: Vaxta- og afborgunarlaus lán frá ríkinu

    66 deilingar
    Share 26 Tweet 17
  • Umferðaróhapp – vegi lokað

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Gjöfin sem gleður … eða ekki

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?