Fimm sóttu um embætti lögreglustjóra í Vestmannaeyjum sem dómsmálaráðuneytið auglýsti laust til umsóknar nýverið. Umsækjendur eru eftirtaldir í stafrófsröð:
- Arndís Bára Ingimarsdóttir, aðstoðarsaksóknari
- Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir, aðstoðarsaksóknari
- Karl Gauti Hjaltason, lögmaður
- Kristmundur Stefán Einarsson, aðstoðarsaksóknari
- Sigurður Hólmar Kristjánsson, aðstoðarsaksóknari
Dómsmálaráðherra skipar lögreglustjóra til 5 ára í senn og er miðað við að skipað verði í embættið frá og með 1. apríl 2023.
Umræða