• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Karlar sem fremja sjálfsvíg – Einelti, falskar ásakanir og ofbeldi

Í sorgarferli vegna veikinda og andláts feðra minna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. febrúar 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ég hef verið í sorgarferli í nokkrar vikur vegna veikinda og andláts tveggja feðra minna.

Arnar Þór Jónsson skrifar

Á því tímabili hef ég fundið hjá mér þörf til að skamma sjálfan mig og aðra. Ég hef skammast í Íslendingum fyrir að trúa öllu sem þeir heyra í fréttatímum ríkisrekinna fjölmiðla; fyrir að afneita inngróinni og landlægri spillingu á Íslandi; fyrir að ráðast á þá sem raska huggulegri og yfirborðslegri heimsmynd Íslendingsins, því íslenskt samfélag er að mörgu leyti eins og fjölskylda alkohólista sem þolir illa að bent sé á stjórnlausa fyllibyttuna sem rót alls vanda.

Ísland hefur alið marga frábæra einstaklinga. Margir þeirra hafa reyndar kosið að verja stærstum hluta ævinnar erlendis og kannski einmitt þess vegna náð að horfa á Ísland úr nægilegri fjarlægð til að setja fram raunhæfa greiningu. Jónas Hallgrímsson er augljósasta dæmið. Jón Helgason prófessor er annað gott dæmi.

Í ljóði Jóns, Í Árnagarði, kemur fyrir eftirfarandi erindi, sem hittir í mark í hvert sinn sem ég les það:

Vatnsfallið streymir af ókunnum öræfaleiðum,
andblærinn líður um túnið af fjarlægum heiðum,
kveiking í hugskoti handan við myrkvaða voga
hittir í sál minni tundur og glæðist í loga.

Þetta hugsaði ég þegar ég las rit Václav Havel, Vald hinna valdlausu (e. Power of the Powerless), þar sem hann lýsir helsjúku ómenningarástandi Tékkóslóvakíu undir harðstjórn kommúnista, þar sem ómanneskjulegt tækniveldi og skrifstofubákn hafði gjöreytt allri mennsku, allri mannlegri reisn og öllu sem kalla mætti kjarna mannlegrar tilvistar: Trú, heimkynni, þjóðvitund, samfélag o.s.frv.

Kommúnisminn í öllu sínu þrúgandi veldi snerist nefnilega aðeins um eitt: Um efnishyggju. Áherslan var ekki á andann, heldur efnið. Allt snerist um neyslu, auglýsingamennsku og framleiðslu. Í slíku samfélagi höfðu menn tvo kosti: Að spila með samtímanum og valdinu og taka þátt í þeirri stýrðu hegðun sem stjórnvöld vildu framkalla – eða gerast andófsmenn með allri þeirri áhættu sem því fylgdi.

36 árum eftir að múrinn hrundi munum við ekki eftir öllum þægu embættismönnunum sem vafalaust áttu glæstan starfsferil innan þessa spillta og klíkuvædda stjórnkerfis. Nei, við munum eftir mönnum eins og Hável og Solzhenitsyn sem lögu allt undir í andófi til að undirstrika að baráttan var ekki við annað fólk um efnisleg verðmæti, því hin raunverulega barátta, þá eins og nú, er milli anda og efnis, milli ljóss og myrkurs, milli góðs og ills.

Þetta er þriðja ástæðan fyrir sorginni sem ég er að kljást við – og í raun sú þungbærasta, því allt of margir Íslendingar afneita hinni andlegu, guðlegu vídd tilverunnar og reyndu að þagga niður í okkur hjónunum – og svo félögum okkar í Lýðræðisflokknum – þegar við bentum á það sem mestu skiptir, sem er friðar- og kærleiksboðskapur Krists. Íslenskur nútími, með allri sinni sjúklegu og kæfandi efnishyggju, þolir ekki að nafn Jesú eða Guðs sé nefnt.

Við erum í andlegri baráttu. Hið illa er raunverulegt og sjáanlegt öllum sem það vilja sjá. En ljósið skín í myrkrinu og myrkrið fær ekki höndlað það.

Í hvoru liðinu ætlar þú að vera, liði ljóssins eða myrkursins?

Arnar Þór kveður Ellert B. Schram, föður sinn

Umræða
Share53Tweet33
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    209 deilingar
    Share 84 Tweet 52
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?