Hér að neðan er yfirlýsing Nemendafélags Háskólans á Bifröstí heild sinni:
Stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst lýsir yfir þungum áhyggjum og fordæmir harðlega framgöngu þeirra stjórnenda sem hafa vegið að nemendum skólans. Við höfum undir höndum öruggar upplýsingar þess efnis að stjórnendur hafi haft samband við einstaka nemendur og beitt þá ótilhlýðilegum þrýstingi í þeim tilgangi að tryggja rektor stuðning. Slík vinnubrögð eru með öllu óásættanleg.
Það er hlutverk stjórnenda að tryggja nemendum öruggt námsumhverfi, en ekki að nýta stöðu sína til að þrýsta á nemendur og reyna þannig að hafa áhrif á sjálfstæða skoðanamyndun þeirra. Í siðareglum Háskólans á Bifröst kemur skýrt fram:
„Nemendur skólans og starfsfólk hans geta óhindrað sett fram gagnrýni á stefnu skólans og starfshætti hans og leggja sig fram um að efla frjáls skoðanaskipti innan skólans og í samfélaginu. Gagnrýni er miðlað á málefnilegan og sanngjarnan hátt.“
Við lítum á þessi brot alvarlegum augum. Í ljósi þessa krefst Nemendafélagið þess að stjórn Háskólans á Bifröst grípi tafarlaust inn í, tryggi vinnufrið nemenda og stöðvi þessa aðför að tjáningarfrelsi innan skólans.

