Starfsmaður Hagkaups í Garðabæ greindist í gær með COVID-19, greint er frá málinu á Facebooksíðu fyrirtækisins. Starfsmaðurinn vinnur við áfyllingar á nóttunni og var síðast við störf aðfaranótt laugardags og sunnudags. Hann var lítið sem ekkert í samskiptum við viðskiptavini, bar grímu og fór eftir öllum sóttvarnarreglum, segir í tilkynningunni.
Umfangsmikil sótthreinsun á öllum helstu snertiflötum í versluninni hefur hefur verið gerð, til að gæta fyllsta öryggis. „Þeir starfsmenn sem unnu á sömu vöktum og umræddur starfsmaður um helgina verða sendir í skimun í dag og munu halda sig heima þar til rakningarteymi almannavarna hefur gefið grænt ljós á endurkomu.
Öll viðbrögð við þessari stöðu eru unnin í nánu samstarfi við almannavarnir,“ segir í tilkynningunni sem Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups skrifar undir. Talið er að smitið tengist smitunum tveimur sem komu upp um helgina, segir Sigurður í samtali við fréttastofu.
Starfsemin verður óbreytt en vel fylgst með stöðu mála.
Kæru viðskiptavinir.
Starfsmaður Hagkaups í Garðabæ greindist jákvæður fyrir Covid-19 í gærkvöldi. Umræddur starfsmaður…
Posted by Hagkaup on Tuesday, 9 March 2021