Íslenska ríkið og Landsvirkjun hafa skrifað undir samkomulag um að Landsvirkjun framselji 33,2% eignarhlut í sæstrengnum Farice (ehf.) og 7,9% eignarhlut í Neyðarlínunni ohf. til ríkissjóðs. Matsverð eignarhlutar í sæstrengnum Farice er um 9,2 milljónir evra og í Neyðarlínunni um 12,5 milljónir króna.
Íslenska ríkið hefur skilgreint fjarskiptasambönd til útlanda sem innviði og eru kaupin gerð í ljósi þess.Farice var stofnað árið 2002 og rekur gagnastrengina Farice og Danice. Eftir framsalið verður Farice að fullu í eigu íslenska ríkisins. Neyðarlínan sér um rekstur neyðarnúmersins 112. Neyðarlínan sér einnig um rekstur Vaktstöðvar siglinga og fjarskiptastöðvarinnar í Gufunesi. Íslenska ríkið mun eftir framsalið eiga 81,5% í Neyðarlínunni.