Jæja hópurinn hefur boðað til mótmæla á Austurvelli klukkan tvö í dag en hópurinn segir ólígarkar Íslands fremja bankarán og vísað er þar til sölu bankasýslu ríkisins á 22% hlut í Íslandsbanka til sérvaldra kaupenda.
,,Deilið ef þið viljið stöðva bankaránið! — Mætum og mótmælum bankaráninu á laugardaginn kl. 14 á Austurvelli. Við mótmælum því að almannaeigur séu seldar á afslætti gegn vilja þjóðarinnar. Skoðanakannanir hafa sýnt að almenningur er á móti sölu bankanna. Stjórnmálamenn eiga að virða lýðræðislegan vilja þjóðarinnar.
Það hefur sífellt verið augljósara að Bjarni Benediktsson og fjölskylda og aðrir ólígarkar Íslands vilji komast aftur yfir bankana. Glitnisskjölin afhjúpuðu hvernig Engeyjingar og núverandi fjármálaráðherra fóru með Glitni/Íslandsbanki eins og sinn persónulega sparibauk og fengu milljarða lán til að kaupa upp Íslensk fyrirtæki fyrir hrun og milljarða afskriftir eftir hrun.
Fjölskylda Bjarna átti leiðandi hluti í Íslandsbanka fram til vorsins 2007 og fékk 130 milljarða í afskriftir.
Síðast þegar bankarnir voru einkavæddir kostaði það þjóðina miklar hörmungar en fall bankanna var þriðja stærsta gjaldþrot sögunnar. Núna eru stjórnmálamenn þjóðarinnar langt komnir með að endurtaka leikinn þvert á vilja kjósenda.
Við krefjumst þess að þessum gjafagjörningi verði rift og stjórnmálafólk stöðvi einkvaðvæðingu bankakerfisins. Bankar eiga að þjóna fólki en ekki aðeins fjármagni. Heildar endurskoðun bankakerfisins með hagsmuni almennings að leiðarljósi, samfélagsvæðing bankakerfisins, og aðgreining viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi er forsenda þess að hægt sé að skapa sátt og traust um fjármálakerfið.“ Segir á vef Jæja hópsins sem hefur boðað til mótmæla á Austurvelli klukkan tvö í dag.
Dagskrá:
* Þorvaldur Gylfason
* Ásta Lóa Þórsdóttir
* Gunnar Smári Egilsson
* Ragnar Þór Ingólfsson
Viðburður á Facebook