• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 5. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Vímaður þjófur á flótta undan lögreglu ók á 140-170 km. hraða í miðborginni

ritstjorn by ritstjorn
9. apríl 2023
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Fréttir LRH frá 17:00-05:00 – Átta gistu í fangageymslu lögreglu í nótt

Tilkynnt var um mann sem var að reyna að komast inn á stigagang í hverfi 110 í nótt. Það fylgdi tilkynningunni að aðilinn væri æstur og óskiljanlegur. Lögreglan fór á vettvang og fannst maðurinn ekki.

Stuttu síðar barst önnur tilkynning um að sami maður hefði komist inn á heimili í sama hverfi og að hann hefði tekið þar bíllykla trausta taki. Hann ók síðan á brott á bifreiðinni. Lögregla mætti í kjölfarið hinni stolnu bifreið og var ökumanninum gefin merki um að stöðva akstur sinn, sem hann gerði ekki og hófst þá eftirför.

Eftirförin hófst í sama hverfi og bifreiðinni hafði verið stolið í og endaði í miðbænum, þar sem aðilinn var handtekinn. Mikil umferð var á þessum tíma og var akstur ökumanns stórhættulegur en hann ók á hraðanum 140-170 km/klst þar sem hámarks aksturshraði er 60 km/klst. Aðilinn einnig grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Gistir ökumaðurinn nú fangageymslu lögreglu í þágu rannsóknar máls.

Fleiri verkefni komu á borð lögreglunnar í nótt:

Tilkynnt var um að aðili væri að skoða inn í bíla við verslunarmiðstöð í hverfi 103. Fylgdi tilkynningunni að aðilinn væri æstur og væri að öskra út í loftið. Lögregla á vettvang þar sem rætt var við aðilann og fór hann síðan sína leið aðeins rólegri.
Tilkynnt um aðila sem væri að panta sér drykki á skemmtistað í miðbænum en neitað svo á borga. Hann var kærður fyrir fjársvik.
Tilkynnt um mann í tökum hjá dyravörðum á skemmtistað í miðbænum.
Leigubílstjóri hringir og biður um aðstoð lögreglu en farþegi í bifreið hans vissi ekki hvar hann átti heima.
Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum. Málið í rannsókn hjá lögreglu.
Tilkynnt um rafskútuslys í hverfi 101. Þar hafði aðili dottið af hjólinu og hlaut minniháttar áverka í andliti. Fluttur á slysadeild til frekari aðhlynningar.
Tilkynnt um samkvæmis hávaða í hverfi 220. Húsráðandi lofaði að lækka.
Tilkynnt um hávaða berast frá íbúð í hverfi 220. Lögregla á vettvang en þar voru húsráðendur í góðum gír að hlusta á tónleika í sjónvarpinu. Lofuðu að lækka.
Tilkynnt um ölvaðan mann til vandræða í hverfi 200.
Tilkynnt um eld í gróðri í hverfi 112. Ekkert að sjá þegar lögregla kom á vettvang.
  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?