• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hagur barns ætti alltaf að vera í forgrunni

Rannsóknin var unnin af Nínu Eck, nema við Félagsráðgjafardeild HÍ, en leiðbeinendur hennar í verkefninu voru þau Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild, og Ingólfur V. Gíslason, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild HÍ.

Hagur barns ætti alltaf að vera í forgrunni

Ónothæfi sáttameðferð hjá sýslumannsembættum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. apríl 2024
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Undanfarin misseri hefur talsvert verið fjallað um vanda feðra við að auka umgengni við börn sín, ekki síst þegar forsjá er ekki sameiginleg. Nýlega var í gangi rannsókn við Háskóla Íslands sem sneri að upplifun og tilfinningum feðra sem umgangast börnin sín minna en aðra hverja helgi að jafnaði. Einnig voru rannsökuð viðbrögð barnavernda og sýslumannsembætta við þeim vanda sem feðurnir mæta þegar þeir sækjast eftir aukinni umgengni. 

Rannsóknin var unnin af Nínu Eck, nema við Félagsráðgjafardeild HÍ, en leiðbeinendur hennar í verkefninu voru þau Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild, og Ingólfur V. Gíslason, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild HÍ.

Nína segir að niðurstöður rannsókna hafi sýnt fram á að jöfn umgengni geri það að verkum að barn telji sig öruggt þegar kemur að tengslum við báða foreldra. „Þetta eru niðurstöður sem hafa leitt til lagabreytinga víðs vegar í Bandaríkjunum þar sem jöfn umgengni er talin vera normið en á Íslandi er miðað við lágmarksumgengni eins og hún er skilgreind í 20 ára gömlu frumvarpi er varð að barnalögum,“ segir Nína en áhugi hennar hefur fyrst og fremst legið í því að bæta kynjajafnrétti í meðferð umgengnismála á Íslandi.

Feður finna fyrir sorg

Nína segir að rannsóknin, sem var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna, hafi upphaflega átt að vera mótsvar við baráttu gegn tálmun, sem hefur verið í umfjöllun í samfélaginu reglulega. „Mig langaði því að kanna ástæður fyrir því að feður hafa ekki áhuga á að hitta börnin sín.“

Þegar vikið er að niðurstöðum rannsóknarinnar segir Nína að feður finni fyrir sorg og vanmætti og hafi flestir átt sögu um ágreining, annaðhvort við barnsmæður sínar eða stjórnsýsluna.

„Í einu tilfelli sagði barnsmóðir mannsins að hann hefði ekki áhuga á samskiptum við barn sitt í því skyni að þurfa ekki að stuðla að umgengni hans við barnið. Starfsmenn barnaverndar og sýslumanns komu orði á að það vantaði úrræði til að koma á umgengni en afsöluðu sér ábyrgð á því og vildu að ný stofnun yrði sett á legg.“

Vonast til að rannsóknin hjálpi við úrbætur

Aðspurð um áhrif þessarar rannsóknar segist Nína vonast til þess að hún verði til þess að mæður veiti því aukna athygli að stuðla að samskiptum barns við föður sinn, „þó svo að foreldrarnir séu ekki sammála eða áttu slæm sambandsslit. Hagur barns ætti að vera hafður í forgrunni í öllum málum og er mikilvægt fyrir okkur sem mæður að geta aðskilið neikvæðar tilfinningar í garð fyrrverandi maka frá hæfni hans sem foreldri og þeim rétti barns að þekkja báða foreldra sína og njóta umönnunar þeirra.“

„Eins og staðan er í dag eru foreldrar sem ekki deila lögheimili með barni sínu ekki skráðir sem foreldrar í þjóðskrá eða hjá Hagstofu Íslands. Umgengnismál eru klárlega kynjajafnréttismál en það virðist erfitt að tala um þau í því samhengi því sumir geta ekki aðgreint umgengnismál frá málum þar sem börn eru neydd í umgengni við feður sem beita ofbeldi,“ segir Nína. MYND/Kristinn Ingvarsson

Nína Eck

Nýsköpunarflötur í rannsókninni

Nína er á því að í rannsókninni sé ákveðinn nýsköpunarflötur sem felist ekki síst í því að hér sé kjörið tækifæri fyrir sjálfstætt starfandi félagsráðgjafa að bjóða fram aðstoð sína. „Ef íslensk stjórnsýsla er ekki tilbúin að taka þessi mál að sér væri hægt að setja á fót ákveðna milligönguþjónustu til þess að veita mæðrum þá hugarró að umgengnin sé örugg og að einhver sé föðurnum til taks á meðan á umgengninni stendur án þess þó að þurfa að nýta sér dómskvadda umgengni undir eftirliti, sem feðrum finnst oft niðrandi eða neikvæð upplifun,“ segir Nína.

Umgengnismál eru klárlega kynjajafnréttismál

Hún bætir því einnig við að þrátt fyrir það að heimsmarkmið fimm, „Jafnrétti kynjanna“ snúi einungis að konum og stúlkum þá telji hún að umgengni feðra við börn sín sé mjög mikilvægt jafnréttismál og falli þar undir. „Eins og staðan er í dag eru foreldrar sem ekki deila lögheimili með barni sínu ekki skráðir sem foreldrar í þjóðskrá eða hjá Hagstofu Íslands. Umgengnismál eru klárlega kynjajafnréttismál en það virðist erfitt að tala um þau í því samhengi því sumir geta ekki aðgreint umgengnismál frá málum þar sem börn eru neydd í umgengni við feður sem beita ofbeldi.“

Nína segir að þessi rannsókn sín sé eigindleg en hlutverk slíkra rannsókna á sviði félagsvísinda sé t.d. að leiðbeina stjórnsýslunni um hvað megi gera betur, t.d. með því að draga fram viðhorf einstaklings í þeim málum þar sem skortur er á vilja til að hlusta á hann.

Ónothæfi sáttameðferð hjá sýslumannsembættum

Þá er rétt að benda á BA ritgerð Nínu Eck, en þar er fjallað um ónothæfi sáttameðferða eins og þær eru nýttar hjá Sýslumanni. Athugavert er að þar er ekki verið að nota nýjustu faglegu þekkingu. Sú hugmyndafræði sem þau segjast nota var afsönnuð að virki í þessu samhengi áður en hún var tekin í notkun hjá Sýslumanni. Sjá á Skemmu: http://hdl.handle.net/1946/40340

Umræða
Share4Tweet3
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    156 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    100 deilingar
    Share 40 Tweet 25
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?