Lína langsokkur (fullu nafni Sigurlína Rúllugardína Nýlendína Krúsimunda Efraímsdóttir langsokkur) var sögupersóna í bókaflokki eftir Astrid Lindgren. Sögurnar um Línu langsokk hafa verið gefnar út á fjölmörgum þjóðtungum. Á íslensku hefur m.a. komið út hljómplatan ,,Hanna Valdís – Lína langsokkur“ og leikrit hafa verið sett á svið þau rúmu 70 ár sem að Lína hefur skemmt börnum víðsvegar um heim.
Lína býr á Sjónarhóli ásamt apanum herra Níels og hestinum sínum doppótta. Faðir hennar er skipstjóri sem er eyðir öllum sínum tíma á sjó og því þarf Lína að sjá um sig sjálf. Það reynist henni auðvelt þar sem hún er sterkasta stelpa í heimi.
Nágrannar hennar Tommi og Anna eru bestu vinir hennar. Forsíðumyndin er af leikurunum nú 50 árum síðar og óhætt er að segja að þau hafi öll breyst talsvert frá því sem að aðdáendur muna. Inger Nilsson lék Línu, Maria Persson lék Önnu og Pär Sundberg lék Tomma.
Astrid Lindgren var fædd árið 1907 og lést 94 að aldri árið 2002. Fyrsta saga Lindgren var jólasaga sem birt var í tímariti árið 1933. Á vef Forlagsins, sem gaf árið 2014 út allar sögurnar um Línu, segir að dag nokkurn árið 1941 varð níu ára dóttir rithöfundarins veik.
Astrid Lindgren stytti hennir stundirnar í veikindunum með sögum af óforbetranlegum ólátabelg sem bjó í stóru húsi ásamt hesti sínum og apa en laus við foreldra sína. Dóttir Lindgren, sem hét Karin, átti hugmyndina að því að stelpan í sögunni fengið nafnið Pippi, sem á íslensku var skírð Lína.
Astrid Lindgren reyndi að fá sögurnar um ævintýri Línu Langsokks gefnar út hjá forlagi árið 1944. En handritinu var hafnað. Þrjár fyrstu sögurnar af Línu komu svo ekki út fyrr en ári síðar hjá útgáfunni Rabén & Sjögren. Fleiri sögur litu dagsins ljós til ársins 1948.