• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 4. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Auglýsing á starfi safnstjóra Listasafns Íslands

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. september 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Að gefnu tilefni vill menningar- og viðskiptaráðuneytið taka fram eftirfarandi varðandi auglýsingu á starfi safnstjóra Listasafns Íslands: Athugasemdir hafa verið gerðar um að umsóknarfrestur sé of skammur, að nýráðnum safnstjóra sé ætlaður of skammur tími til að taka við safnstjórn og að áherslur í auglýsingunni séu ekki fullnægjandi.

Hið rétta er að almennur frestur til að sækja um auglýstar stöður hjá hinu opinbera eru 14 dagar frá því að auglýsing er birt. Í þessu tilfelli var fyrsta birting auglýsingarinnar 26. ágúst sl. en  umsóknarfrestur rennur út 20. september. Líða þannig 26 dagar frá fyrstu birtingu til síðasta umsóknardags.

Löng hefð er fyrir því, þegar ráðinn er nýr forstöðumaður hjá hinu opinbera, að gæta að einstaklingsbundnum aðstæðum viðkomandi við upphaf starfs. Ef nýr safnstjóri þarf lengri tíma til að ljúka fráfarandi starfi mun annar einstaklingur verða fenginn til að hlaupa í skarðið tímabundið.

Auglýsingin birtir hæfniskröfur sem eru m.a. teknar beint upp úr myndlistarlögum um hvaða þekkingu og menntun safnstjóra er ætlað að hafa. Í auglýsingunni er lögð áhersla á þá staðreynd að safnstjóri Listasafns Íslands er eins og aðrir forstöðumenn opinberra stofnana, stjórnandi hennar og þarf því að hafa til að bera stjórnunarreynslu.

Í ljósi þess að um eitt af höfuðsöfnum Íslands er að ræða er lögð áhersla í auglýsingunni á að leita eftir leiðtoga fyrir þann hóp starfsfólks sem starfar hjá safninu, sem annast um safneignina, varðveislu og sýningu hennar. Var þannig m.a. horft til stjórnendastefnu hins opinbera sem finna má á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands, sbr. 39. gr. C laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hval­fjarð­ar­göng lokuð vegna hjól­reiða­manns – Búið er að loka göngunum aftur

    Hvalfjarðargöng eru lokuð

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Sýklalyfjaónæmar bakteríur (MÓSA) greinast í fyrsta sinn á Íslandi  

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Salmonella staðfest

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Við vitum nákvæmlega hvað mun gerast hér á landi“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?