• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 26. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Réttindabarátta strandveiðimanna og sjávarbyggða – rökin fyrir frjálsum handfæraveiðum

Eyjólfur Ármannsson skrifar

Frjálsar handfæraveiðar – Flokkur fólksins

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. september 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Frjálsar strand­veiðar varða mann­réttindi

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra

Strandveiðikerfið í dag er miklum annmörkum háð Það heimilar aðeins veiðar í 48 daga á ári, 12 daga á mánuði frá maí til ágústs. Þá er potturinn lítill og klárast reglulega áður en strandveiðitímabilinu lýkur, með þeim afleiðingum að margir ná ekki að fullnýta veiðirétt sinn.

Eitt fyrsta og brýnasta verk sjávarútvegsráðherra VG var að skerða þorskveiðiheimildir í strandveiðum um 1500 tonn, þrátt fyrir að kosningabarátta flokksins í Norðvesturkjördæmi sl. haust hefði byggst sérstaklega á hátíðlegum loforðum um eflingu strandveiða og sjávarbyggða.

Frjálsar handfæraveiðar

Flokkur fólksins mælti fyrir rúmri viku fyrir frumvarpi um frjálsar handfæraveiðar þar sem fiskveiðar eru heimilaðar á eigin báti með fjórum sjálfvirkum handfærarúllum. Markmið frumvarpsins er að íbúar sjávarbyggðanna fái rétt til að nýta sjávarauðlindina þannig að fjölskyldur geti lifað af fiskveiðum. Sá réttur verður einungis tryggður með eflingu strandveiða sem atvinnugreinar og með því að gefa handfæraveiðar frjálsar.

Engin mótrök

Rökin fyrir þessu eru að handfæraveiðar ógna ekki fiskistofnum á Íslandsmiðum. Kvótakerfið var sett til verndar fiskistofnum og á því einungis að ná til þeirra veiðiaðferða og veiðarfæra sem geta stofnað fiskistofnum í hættu. Handfæraveiðar með önglum ógna ekki fiskistofnum og því ber að gefa þær frjálsar. Rökin fyrir núgildandi takmörkun handfæraveiða eru ekki fyrir hendi.

Undan ströndum Íslands eru ein gjöfulustu fiskimið í heimi. Þessa auðlind hafa Íslendingar nýtt frá því land byggðist. Íbúar sjávarbyggðanna eiga tilkall til fiskimiðanna undan ströndum landsins. Þar hefur byggð frá landnámi byggst á fiskveiðum og landbúnaði.

Rétturinn til handfæraveiða er ævaforn og á styrka stoð í réttarvitund almennings. Í Jónsbók frá 1281, lögbók Íslendinga í árhundruð, segir „Allir menn eigu at veiða fyrir utan netlög at ósekju.“

Barátta fyrir atvinnufrelsi

Baráttan fyrir frjálsum strandveiðum er réttindabarátta. Barátta fyrir jöfnum búseturétti og rétti íbúa sjávarbyggðanna á landsbyggðinni, þar sem byggð hefur alla tíð byggst á fiskveiðum. Hægt er að tryggja þennan rétt með eflingu strandveiða. Þetta er barátta fyrir atvinnufrelsi en takmarkanir á atvinnufrelsi mega ekki ganga lengra en nauðsyn krefur.

Núverandi strandveiðikerfi með 48 veiðidögum og litlum aflaheimildum var sett á í kjölfar álits Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá 2007. Í álitinu var talið að stjórnkerfi fiskveiða bryti á jafnræði borgaranna samkvæmt alþjóðasamningi um borgarleg og stjórnmálaleg réttindi. Núverandi strandveiðikerfi tryggir ekki jafnræði borgaranna. Til þess eru takmarkanir á veiðunum of miklar og skerðing atvinnufrelsis til handfæraveiða gengur miklu lengra en nauðsyn krefur.

Strandveiðifélag Íslands stofnað

Strandveiðifélag Íslands var stofnað um sl. helgi, til að berjast fyrir rétti almennings til handfæraveiða við Íslandsstrendur og koma í veg fyrir mismunun í lögum um fiskveiðistjórnun. Markmiðið er að stuðla að nauðsynlegum breytingum á kvótakerfinu í átt að réttlæti fyrir alla þjóðina, umbótum á vísindalegum hafrannsóknum og veiðiráðgjöf, verndun hafsins og fiskistofna.

Félagið er opið öllum sem eru sammála tilgangi og markmiðum þess. enda varðar málefnið alla landsmenn. Hér er um mikilvægt félag að ræða í þeirri mannréttindabaráttu sem frjálsar handfæraveiðar eru. Það er barátta fyrir fólkið í landinu, tilverurétti og búseturétti í sjávarbyggðum landsins og fyrir grundvelli allrar byggðar, sem er atvinnufrelsið.

Þessa grein skrifaði Eyjólfur Ármannsson þann 14. mars árið 2022 en Flokki fólksins tókst ekki að tryggja strandveiðar í 48 daga sem var fyrsta loforð flokksins í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Umræða
Share3Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    Sannkölluð stórhríð og appelsínugular viðvaranir

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Líkamsárás í Túnahverfi og Hamas-samtökin

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Bankarnir vilja peningana þína

    95 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Viðvörun: Vindhviður 35 m/s og yfir 45 m/s

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?