Miðflokkurinn næst stærstur á eftir Sjálfstæðisflokknum

 

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 19,8%, einu og hálfu prósentustigi meira en við mælingu MMR í september. Fylgi Miðflokksins mældist 14,8% og jókst um tæp þrjú prósentustig frá síðustu mælingu. Þá minnkaði fylgi Pírata um rúmlega þrjú og hálft prósentustig og fylgi Vinstri-grænna minnkaði um tvö og hálft prósentustig.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 42,0%, samanborið við 43,7% í síðustu könnun

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 19,8% og mældist 18,3% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 14,8% og mældist 12,0% í síðustu könnnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 14,1% og mældist 14,8% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 11,0% og mældist 10,2% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,3% og mældist 12,8% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,1% og mældist 11,8% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 8,8% og mældist 12,4% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,6% og mældist 4,0% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 3,1% og mældist 2,0% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 2,4% samanlagt.
1910 Fylgi
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,9%), myndu skila auðu (6,7%), myndu ekki kjósa (2,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
1910 Fylgi tími
 
Stuðningur við ríkisstjórnina
1910 Studningur
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 2124 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 30. september til 9. október 2019

eru unnar fyrir aðra eða fjármagnaðar af öðrum. Kannanir MMR eru unnar samkvæmt siðareglum ESOMAR.
Umræða

Hæ!

Login to your account below

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Add New Playlist

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?