• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sanngjörnum kröfum starfsmanna álvera ekki mætt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. október 2020
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Fyrirtæki geta ekki skert ferða- eða persónufrelsi umfram það sem stjórnvöld gera

Það er fullt tilefni til að senda baráttu- og stuðningskveðjur inn í þær viðræður sem nú eru í gangi innan stóriðjunnar en starfsfólk bæði hjá Norðuráli og í Straumsvík hafa boðað til verkfalla. Í Norðuráli hefjast verkföll 8. desember ef ekki tekst að semja en í fyrradag samþykktu félagar í fimm af sex stéttarfélögum í Straumsvík að hefja skæruverkföll 16. október og allsherjarverkfall 1. desember.

Verkföll eru neyðarúrræði starfsfólks til að þrýsta á um kjarasamninga og það er á ábyrgð stjórnenda álveranna að mæta sanngjörnum kröfum starfsfólks sem eru í takt við það sem samið hefur verið um annars staðar. Ég hvet starfsfólk til dáða og fullvissa það um stuðning ASÍ í erfiðum deilum.
Þessa dagana reynir á okkur öll í sóttvörnum en besti árangurinn hefur náðst þegar það samtakamátturinn er virkjaður og allir leggjast á eitt. Þegar daglegu lífi eru settar skorður þarf að gæta þess afar vel að ekki sé þrengt að fólki meira en nauðsyn er. Fréttir hafa borist af því að fyrirtæki hlutist til um hverja starfsfólk megi hitta í sínum frítíma og jafnvel að skikka fólk í launalausa sóttkví ef ekki er farið að reglum fyrirtækja umfram almenn tilmæli stjórnvalda. Slíkt er ólöglegt!
Fyrirtæki geta ekki skert ferða- eða persónufrelsi umfram það sem stjórnvöld gera og ég hvet launafólk til að hafa strax samband við sitt stéttarfélag ef fyrirtæki sýna tilburði í þessa átt. Ástandið núna má ekki verða til þess að vega að mannréttindum eða að atvinnurekendur taki sér vald yfir einkalífi starfsfólks.
Komumst út úr kófinu með samstilltu átaki og samtakamætti en ekki valdboðum! Þvoum, sprittum og leitum lausna.  Góða helgi, Drífa

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?