Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á opnum fundi í Gjánni í Grindavík og tók þátt í umræðum með Grindvíkingum um framtíð bæjarins. Á fundinum kom fram að stjórnvöld hafi sett af stað opið samráðsferli um næstu skref í endurreisn Grindavíkur.
Í tilkynningu segir að undanfarnar vikur hafi Grindavíkurnefnd unnið að gerð umræðuskjals um sveitarstjórnarkosningar, stjórnskipulag og samráð í endurreisnarferlinu sem byggir m.a. á samtali nefndarinnar, Grindavíkurbæjar og forsætisráðuneytisins.
Umræðuskjalið hefur verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið er að kalla eftir sjónarmiðum Grindvíkinga og annarra hagaðila um lykilþætti er varða endurreisn og framtíðarsýn bæjarins.
Þá segir í tilkynningunni að eitt af mikilvægustu viðfangsefnum næstu vikna og mánaða sé framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna vorið 2026 og hvernig hægt sé að tryggja að niðurstöður þeirra endurspegli raunverulegan vilja Grindvíkinga og tryggi bæjarfélaginu skýrt lýðræðislegt umboð. Eru þar reifaðar ólíkar leiðir varðandi kosningarétt:
- að þeir sem voru skráðir með lögheimili í Grindavík við rýmingu bæjarins geti valið hvort þeir nýti atkvæðisrétt sinn í Grindavík eða í því sveitarfélagi sem viðkomandi er skráður í við útgáfu kjörskrár,
- að þeir sem eru skráðir með lögheimili í Grindavík við útgáfu kjörskrár geti kosið þar,
- að miða kjörskrá eingöngu við raunverulega búsetu í Grindavík.
Einnig er óskað eftir viðhorfum til þess hvernig samstarf ríkis og sveitarfélagsins geti best stutt við endurreisnarferlið og hvernig megi tryggja að raddir Grindvíkinga, óháð núverandi búsetu, hafi raunverulegt vægi í ákvarðanatöku um framtíð bæjarins. Loks er leitað eftir sjónarmiðum um aðkomu alþjóðlegra aðila til að veita ráðgjöf í endurreisnarferlinu.
Út frá ofangreindum áherslum eru settar fram fjórar spurningar sem kallað er eftir umræðu um en hægt er að senda inn umsagnir til og með 31. október nk.:
- Hvernig getum við best tryggt að rödd Grindvíkinga heyrist og hafi vægi í ákvarðanatöku um endurreisn og uppbyggingu í Grindavík ?
- Hvernig finnst þér réttast að útfæra kosningarétt Grindvíkinga (eingöngu skráð lögheimili, raunveruleg búseta, eða val fyrir þá sem áttu lögheimili 10. nóvember 2023)?
- Með hvaða hætti mætti koma á skilvirkri samvinnu milli sveitarfélags og ríkis á næsta kjörtímabili þannig að hún stuðli að farsælli endurreisn og trausti samfélagsins?
- Hvað finnst þér um að fá Alþjóðabankann eða aðra alþjóðlega aðila að borðinu með ráðgjöf varðandi endurreisn Grindavíkur og hvaða væntingar hefur þú til slíks samstarfs?

